Lífið

Pantone gefur út nýjan fjólubláan lit til heiðurs Prince

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Prince lést í apríl árið 2016 aðeins 57 ára að aldri.
Prince lést í apríl árið 2016 aðeins 57 ára að aldri. Vísir/Getty
Nýjasti litur Pantone, Love Symbol #2, er fagurfjólublár og er gerður til heiðurs tónlistarmannsins Prince.

Fjólublár var einkennislitur söngvarans sérvitra. Gaf hann út plötuna Purple Rain, lék í kvikmyndinni Purple Rain, gítar hans og flygill voru fjólubláir og var hann oftar en ekki í fjólubláum alklæðnaði.

Pantone er einna þekktast fyrir að velja á hverju ári „lit ársins“ og verða þeir litir oft mjög sýnilegir á tískupöllunum það árið. Því ætti engan að furða ef liturinn Love Symbol #2 verði alls ráðandi næstu misserin.

Fjólublár samofinn Prince

„Það er okkur heiður að þróa Love Symbol #2, einstakan nýjan fjólubláan gerðan til minningar um Prince, „hinn fjólubláa“,“ sagði Laurie Pressman, varaforseti Pantone stofnunarinnar, í tilkynningu.

„Fjólublái liturinn var samofinn Prince sem manneskju og mun alltaf vera. Á þennan einstaka hátt mun arfleið hans lifa að eilífu,“ sagði Troy Carter, talsmaður dánarbús Prince.

Um þessar mundir er einmitt haldið upp á 30 ára afmæli plötunnar Purple Rain. Á henni má finna nokkur þekktustu og vinsælustu lög Prince. Meðal annars titillagið Purple Rain, Let‘s Go Crazy og When Doves Cry. Tónlist Prince var í febrúar á þessu ári gerð aðgengileg á öllum hels

Prince lést þann 21. apríl árið 2016 aðeins 57 ára gamall. Hann lést úr of stórum skammti af lyfinu Fentanyl.

Hér fyrir neðan má sjá einn frægasta flutning Prince á laginu Purple Rain, í hálfleikssýningu Super Bowl árið 2007






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.