Kraumslistinn 2017 tilkynntur Stefán Árni Pálsson skrifar 1. desember 2017 13:30 Verðlaunhafar 2016: Alvia Islandia, Amiina, GKR, Gyða Valtýsdóttir, Kælan mikla, Páll Ívan frá Eiðum
Kraumsverðlaunin, árleg plötuverðlaun tónlistarsjóðsins Kraums sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðarsjóðs, verða afhent í tíunda sinn í ár. Venju samkvæmt þá birtir Kraumur úrvalslista verðlaunanna, Kraumslistann, í byrjun desember yfir þær plötur sem þykja hafa skarað framúr í íslenskri tónlist á árinu. Kraumsverðlaunin sjálf verða svo afhent síðar í mánuðinum. Kraumslistanum og Kraumsverðlaununum er ætlað að kynna og styðja við útgáfustarfsemi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi - og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Verðlaunin eru ekki bundinn ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Allar íslenskar plötur sem komið hafa út á árinu eiga möguleika á að komast á Kraumslistann og hreppa þar með Kraumsverðlaunin. Bæði plötur sem eru gefnar út á geisladisk og vínyl, sem og útgáfur á Spotify og netinu. Útgáfustarfsemi á Spotify og netinu hefur færst mikið í vöxt síðustu ár og er stór hluti þeirra verka sem íslenskir listamenn og hljómsveitir hafa gefið út það sem af eru ári aðeins fáanleg með þeim hætti. Það er von aðstandenda Kraumsverðlaunanna að Kraumslistinn og verðlaunin sjálf veki athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem einkennir íslenskt tónlistarlíf og plötuútgáfu. Alls voru 374útgafur til hlustunar og umfjöllunar hjá dómnefnd og því ljóst að mikið er að gerast í útgáfustarsemi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita. DÓMNEFNDKraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af fjórtán manna dómnefnd sem skipað er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum, á vegum Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (IMX) og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Andrea Jónsdóttir, Anna Ásthildur Thorsteinsson, Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Benedikt Reynisson, Berglind Sunna Stefánsdóttir, Heiða Eiríksdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Jóhann Ágúst Jóhannsson, Tanya Pollock, Trausti Júlíusson og Óli Dóri. Dómnefndin hefur hlustað á og tekið til umfjöllunar 374 hljómplötur og útgáfur íslenskra listamanna og hljómsveita sem komu út á árinu við val sitt á Kraumslistanum 2017. Nefndin vinnur nú að því að velja sex hljómplötur sem hljóta munu Kraumsverðlaunin í ár.UM KRAUMSVERÐLAUNINKraumsverðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 2008 og hafa alls 45 íslenskar hljómsveitir og listamenn hlotið þau fyrir verk sín. Má þar nefna; Ásgeir, Mammút, Anna Þorvaldsdóttir, Hjaltalín, Retro Stefson, Hildur Guðnadóttir, Daníel Bjarnason, Cell 7, Sóley, Lay Low, ADHD, Ojba Rasta, FM Belfast, Hugi Guðmundsson, Agent Fresco, Samaris, Misþyrming, Moses Hightower, Grísalappalísa, Helgi Hrafn Jónsson, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Andreas Kristinsson, Sin Fang, Ísafold kammersveit og Ólöf Arnalds. Kraumsverðlaunin ár svo afhent í 10.-sinn síðar í desember. Í fyrra hlutu Alvia Islandia (Bubblegum Bitch), Amiina (Fantomas), GKR (GKR), Gyða Valtýsdóttir (Epicycle), Kælan Mikla (Kælan Mikla) og Páll Ívan (This is My Shit) verðlaunin. Kraumsverðlaunin snúast ekki um eina ákveðna verðlaunaplötu heldur að beina kastljósinu að Kraumslistanum í heild og síðan að velja og verðlauna sérstaklega sex hljómplötur sem hljóta Kraumsverðlaunin. KRAUMUR & AURORA VELGERÐARSJÓÐUR Aðstandandi Kraumslistans er tónlistarsjóðurinn Kraumur sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðarsjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.Hér að neðan má sjá listann í ár í heild sinni: Alvia Islandia - Elegant Hoe Baldvin Snær Hlynsson - Renewal Bára Gísladóttir - Mass for Some Biogen - Halogen Continues Bjarki - THIS 5321 Cyber - Horror Dodda Maggý - C series Elli Grill & Dr. Phil - Þykk Fitan Vol. 5 Eva808 - Prrr GlerAkur The Mountains Are Beautiful Now Godchilla - Hypnopolis Fersteinn - Lárviður Hafdís Bjarnadóttir - Já Hatari - Neysluvara EP JFDR - Brazil Joey Christ - Joey kef LAVÍK - Ágæt ein: Lög um að ríða og / eða nota fíkniefni Legend - Midnight Champion Nordic Affect - Raindamage Pink Street Boys - Smells like boys SiGRÚN - Smitari Sólveig Matthildur - Unexplained miseries & the acceptance of sorrow Úlfur - Arborescence Volruptus - Hessdalen World Narcosis - Lyruljóra
Mest lesið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Lífið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Jónsi og Una Torfa létu sig ekki vanta á opnunarhátíð Krafts Lífið Fleiri fréttir Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Jónsi og Una Torfa létu sig ekki vanta á opnunarhátíð Krafts Merzedes Club snýr aftur Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Þungarokkarar komast ekki til Íslands Guðlaugur og Anný Rós keyptu einbýli í Garðabæ Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Gunnar selur þakíbúð í „New York Loft-stíl“ Syndir á móti straumnum í old school hiphopi Sænsk sjónvarpsgoðsögn látin Fimm dýrustu eignirnar sem seldust árið 2024 Söng- og leikkonan Marianne Faithfull er látin Dagur og Ingunn hætt saman Innlit í fataskáp Dóru Júlíu Tóku hús í gegn út á Seltjarnarnesi og settu upp hjónasvítu í bílskúrnum Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Mesta mýtan að fólkið sé grimmt og dónalegt Rán, Guðjón, Kristín og Stefán Máni hrepptu hnossið Enn einn breski erfinginn í heiminn Átján ára aldursmunur milli yngsta og elsta keppanda í Ungfrú Ísland Will Ferrell ætlar með Husavik á Broadway Skinkukallinn er víða Jörundur og Magdalena selja íbúð á eftirsóttum stað „Hann var of góður fyrir þennan grimma heim sem við búum í“ „Mér finnst ekkert skemmtilegra en að spila bridge“ Sjá meira