Lífið

Gerðu þrjár útgáfur af Bombunni vegna leiks landsliðsins

Samúel Karl Ólason skrifar
Það hefur lengi verið brandari í Bombunni með Loga að þátturinn sé í beinni útsendingu. Það þurfti þó ákveðin átök til að halda þeim brandara gangandi í þættinum sem sýndur var á föstudaginn.

Þá var íslenska landsliðið að spila við Tyrkland og þurfti að taka upp þrjár útgáfur af nokkrum atriðum þáttarins til að viðhalda brandaranum. Teknar voru upp útgáfur fyrir sigur, jafntefli og tap.

Að endingu var útgáfan fyrir sigur notuð í þættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.