Íslenski boltinn

Castillion kátur í FH-búningnum | Mynd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Geoffrey Castillion skoraði 11 mörk fyrir Víking R. í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili.
Geoffrey Castillion skoraði 11 mörk fyrir Víking R. í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili. vísir/andri marinó
Geoffrey Castillion er genginn í raðir FH frá Víkingi R.

Hollendingurinn var ekki viðstaddur blaðamannafundinn í Kaplakrika í dag, þar sem hann og Kristinn Steindórsson voru kynntir til leiks.

FH-ingar birtu hins vegar skemmtilega mynd af Castillion í FH-búningnum á Twitter. Hana má sjá hér fyrir neðan.

Castillion var iðinn við kolann með Víkingi á síðasta tímabili. Hann skoraði 11 mörk í 16 leikjum í Pepsi-deildinni.

FH ætlar sér stóra hluti á næsta tímabili en auk Castillions og Kristins hefur liðið krækt í Hjört Loga Valgarðsson og Guðmund Kristjánsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×