Innlent

Borgarstjórn fær tvö álit á kjörgengi Kristínar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kristín Soffía Jónsdóttir tók sæti að nýju í borgarstjórn Reykjavíkur í haust eftir að hafa dvalið í Danmörku.
Kristín Soffía Jónsdóttir tók sæti að nýju í borgarstjórn Reykjavíkur í haust eftir að hafa dvalið í Danmörku. vísir/ernir
Forsætisnefnd Reykjavíkurborgar hefur óskað eftir lögfræðiáliti frá Trausta Fannari Valssyni, dósent í lögfræði við Háskóla Íslands, og Logos lögmannsþjónustu vegna vafa um kjörgengi Kristínar Soffíu Jónsdóttur borgarfulltrúa. Þetta staðfestir Líf Magneudóttir, forseti borgarstjórnar. Líf segir að óskað hafi verið eftir álitunum í síðustu viku. Ekki reyndist unnt að funda um málið í forsætisnefnd í gær þar sem álitin höfðu ekki borist. Búist er við því að þau verði tilbúin í næstu viku.

Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi.vísir/valli
Eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá tók Kristín Soffía sæti aftur í borgarstjórn í haust eftir að hafa snúið aftur heim frá Danmörku þar sem hún var í fæðingarorlofi. Vafi hefur leikið á kjörgengi hennar.

Ástæðan er sú að í 37. grein samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar segir: „Þegar borgarfulltrúi flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má borgarstjórn ákveða, að hans ósk, að hann skuli víkja úr borgarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í Reykjavík. Slík ákvörðun skal tekin áður en borgarfulltrúi flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein missir borgarfulltrúi kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi.“

Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar, hefur sagt í svari til Fréttablaðsins að Kristín Soffía hafi verið í fæðingarorlofi frá júnímánuði 2016 til júlímánaðar 2017. Enn fremur að borgarstjórn hafi enga aðkomu að málefnum borgarfulltrúa í fæðingarorlofi enda sitji þeir ekki í borgarstjórn á meðan á því stendur og þiggja hvorki laun né önnur réttindi á þeim tíma. Það er mat Helgu Bjarkar að Kristín Soffía hafi uppfyllt öll kjörgengisskilyrði þegar hún tók sæti í borgarstjórn á ný eftir fæðingarorlof.

Síðar hefur Fréttablaðið greint frá því að upplýsingar úr Þjóðskrá benda til þess að Kristín Soffía hafi flutt lögheimilið sitt til Danmerkur hinn 8. apríl 2016. Samkvæmt upplýsingum úr fundargerðum Strætó bs. gegndi hún engu að síður skyldum borgarfulltrúa 18. apríl 2016 með því að taka þátt í stjórnarfundi Strætó í gegnum síma. Hún tók aftur þátt í fundi stjórnar Strætó í gegnum síma föstudaginn 29. apríl.


Tengdar fréttir

Vafi leikur á kjörgengi fulltrúa Samfylkingar í borgarstjórn

Kristín Soffía Jónsdóttir hefur tekið sæti í borgarstjórn eftir dvöl erlendis í fæðingarorlofi. Samþykkt Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að borgarfulltrúi sem fer í leyfi fái samþykki borgarstjórnar áður en hann flytur lögheimili sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×