Stjörnurnar segja frá fyrsta kossinum: Salka Sól fór í sleik og missti meydóminn Stefán Árni Pálsson skrifar 9. janúar 2017 12:30 Flottar sögur.
Hjartasteinn er fyrsta kvikmynd leikstjórans Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd en kvikmyndin hefur sópað til sín alþjóðleg verðlaun undanfarna mánuði. Hjartasteinn fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina. Tökur fóru fram haustið 2015 á Borgarfirði eystri, Seyðisfirði, í Vopnafirði og Dyrhólaey. Sérstök forsýning verður í Háskólabíói á morgun og verður myndin frumsýnd 13. janúar. Framleiðendur myndarinnar hvetja Íslendinga til að segja frá sínum fyrsta kossi á Twitter undir kassamerkinu #hjartasteinn eins og sjá má hér að neðan. Kvikmynd á eflaust eftir að vekja upp margar æskuminningar hjá áhorfendum og að því tilefni fengu framleiðendur myndarinnar til sín nokkra þjóðþekkta einstaklinga til að rifja upp sínar æskuminningar og til að byrja með er farið yfir fyrsta kossinn. Um er að ræða Aron Már Ólafsson, Sögu Garðarsdóttir, Kristján Kristjánsson, Sigríður Klingenberg, Arnar Freyr Frostason, Steiney Skúladóttir og Salka Sól Eyfeld. Meðal annars segir Aron Mola frá því að fyrsti alvöru kossinn hafi átt sér stað á leikskóla undir rúmi og hann í Pétur Pan búningi. „Það var minn fyrsti tungukoss, það var bara mjög næs,“ segir Aron Már Ólafsson. „Ég bjó í sveit þegar ég var krakki og hafði aldrei áður farið til Reykjavíkur. Svo kemur einhver ægilega sætur strákur að mér og byrjar að kyssa mig,“ segir Sigríður Klingenberg um fyrsta kossinn hennar. Drengurinn hafi rekið tunguna upp í hana og hún vissi í raun ekkert hvað var að gerast. „Þetta var ótrúlega súrrealískt og ég eiginlega bara fraus. Ég passaði mig bara að hreyfa mig ekki neitt. Svo tók hann út úr mér tunguna og ég spurði næst hvað hann hefði eiginlega verið að gera. Hann svaraði mér að þetta gerðu allir Reykjavík.“ Salka Sól Eyfeld segir virkilega skemmtilega sögu af sínum fyrsta kossi. „Það voru strákar mættir í bæinn utan af landi sem voru í hljómsveit og við vinkonurnar vorum nettar grúppíur,“ segir Salka og bætir við að þær hafi fengið að halda smá partý fyrir drengina. „Ég er eitthvað að spila á píanóið og hann kemur til mín og segir að ég sé flink að spila. Við ákváðum því næst að fara heim saman,“ segir Salka. Hún segir einnig að þetta kvöld hafi hún farið í fyrsta sleikinn og misst meydóminn. Hér að neðan má hlusta á þessar skemmtilegu sögur. #hjartasteinn Tweets
Mest lesið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Sjá meira