Frá því að Beyonce tilkynnti um óléttu sína þann 1.febrúar seinasta höfum við beðið í ofvæni eftir því hvernig óléttutískan hennar yrði. Að sjálfsögðu olli hún engum vonbrigðum þegar hún var stödd á All Star NBA körfuboltaleiknum í New Orleans um helgina.
Hún mætti í gólfsíðum silkislopp frá Gucci. Það sem meira er var Blue Ivy, dóttir hennar, einnig í grænum Gucci kjól. Fatamerkið er greinilega í miklu uppáhaldi hjá Blue en hún mætti í Gucci jakkafötum á Grammy verðlaunin fyrr í mánuðinum.