Lífið

Nicki Minaj ver kærasta sinn sem hefur verið dæmdur fyrir kynferðisbrot

Birgir Olgeirsson skrifar
Nicki Minaj segist láta gagnrýnina sem vind um eyru þjóta.
Nicki Minaj segist láta gagnrýnina sem vind um eyru þjóta. Vísir/Getty
Bandaríska tónlistarkonan Nicki Minaj var heldur ósátt við gagnrýni sem hún hlaut frá netverjum eftir að hún birti mynd af sér og kærasta sínum. 

Sá heitir Kenny Petty en hann gekkst við sök eftir að hafa verið sakaður um að hafa reynt að nauðga sextán ára stúlku árið 1995.

Voru netverjar heldur ósáttir við val Minaj á kærasta og spurður hvernig hún gæti hugsað sér að vera með honum.

Minaj benti á að Petty hefði verið 15 ára gamall þegar brotið átti sér stað og að hann og stúlkan hefðu verið í sambandi. Sagði Minaj að hún myndi láta gagnrýni netverja sem vind um eyru þjóta.

Page Six bendir á að bróðir Minaj hafi hlotið dóm fyrir kynferðisbrot gegn barni. Þá vann Minaj einnig með rapparanum Tekashi69 sem var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni eftir að hafa birt myndband á netinu af þrettán ára stúlku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.