Lífið

Tónlistin kom henni í gegnum eineltið: Mel B með gæsahúð um allan líkama og ýtti á gullhnappinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mena stóð sig eins og hetja.
Mena stóð sig eins og hetja.
Hin fimmtán ára Amanda Mena mætti í raunveruleikaþáttinn America´s Got Talent á dögunum og sló rækilega í gegn með magnaðri áheyrnarprufu.

Mena flutti lagið A Natural Woman sem Aretha Franklin gerði ódauðlegt á sínum tíma.

Þessi 15 ára stúlka fæddist í Dóminíska Lýðveldinu og flutti fimm ára til Bandaríkjanna.

Þá talaði hún ekki stakt orð í ensku og var lögð mikið í einelti á sínum tíma. Mena segir að tónlistin hafi komið henni í gegnum erfiðan tíma.

Dómararnir voru mjög svo hrifnir af flutningi Amanda Mena en sérstaklega Mel B sem ýtti á gullhnappinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.