Lífið

Hver mynd getur tekið allt upp í þrjá tíma

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sunneva Einarsdóttir hefur verið að gera frábæra hluti á Instagram og er með yfir 36 þúsund fylgjendur.
Sunneva Einarsdóttir hefur verið að gera frábæra hluti á Instagram og er með yfir 36 þúsund fylgjendur. vísir/vilhelm
„Það fer mjög mikið eftir því hvort ég er að eiga góðan dag eða ekki. Ef hárið er í lagi eða make-upið en þetta getur tekið upp í tvo til þrjá tíma,“ segir samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Einarsdóttir sem er sjötti gestur Einkalífsins.

Í þáttunum er rætt við fólk sem skarar fram úr á sínu sviði. Sunneva er gríðarlega vinsæl á Instagram og á Snapchat (sunnevaeinars).

Sunneva segist leggja gríðarlega mikla vinnu í hverja mynd sem hún birtir á Instagram.

„Allt dæmið getur tekið langan tíma. Ef maður vill finna góða staðsetningu en flestallar myndirnar taka um eina klukkustund.“ Sunneva er með yfir 36 þúsund fylgjendur á Instagram þegar þessi grein er skrifuð og fer tala hækkandi með hverjum deginum.

En hver tekur allar myndirnar af henni?

„Það er mjög mismunandi. Vinkonur mínar og stundum litla systir mín, hún er mjög dugleg að hjálpa mér. Annars er það bara sá sem er næstur mér. Ég sendi oft á vinkonur mínar og spyr bara hver sé laus. Ég á eina vinkonu sem er mikið í þessu og við förum oftast saman og hjálpumst að.“

Í þættinum ræðir Sunneva einnig um þegar hún hitti söngkonuna Jennifer Lopez, kvíðann sem fylgir því að vera svona stór persóna á samfélagsmiðlum hér á landi, um duldar auglýsingar og framtíðina á sviði samfélagsmiðla en Sunneva er í námi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands.

Hér að neðan má sjá sjötta þáttinn af Einkalífinu en þátturinn vikulegi er í loftinu á fimmtudögum á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.