Bíó og sjónvarp

Roseanne tekin af dagskrá eftir rasískt tíst

Kjartan Kjartansson skrifar
Roseanne Barr skaut sjálfa sig rækilega í fótinn þegar hún tísti á rasískan hátt um ráðgjafa Obama. Hún hefur nú misst vinsælan sjónvarpsþátt sinn.
Roseanne Barr skaut sjálfa sig rækilega í fótinn þegar hún tísti á rasískan hátt um ráðgjafa Obama. Hún hefur nú misst vinsælan sjónvarpsþátt sinn. Vísir/Getty
Bandaríska sjónvarpsstöðin ABC hefur ákveðið að hætta með sjónvarpsþátt leikkonunnar Roseanne Barr eftir að hún tísti svívirðingum um að fyrrverandi ráðgjafi Baracks Obama væri api. Þættir hennar sem nutu hylli á 10. áratugnum höfðu nýlega verið endurvaktir.

Barr tísti um að Valerie Jarrett, sem er svört, væri barn Bræðralags múslima, egypsk flokks íslamista, og kvikmyndanna um Apaplánetuna. Hún hefur síðan eytt tístinu og beðist afsökunar á lélegum brandara.

Iðrun Barr var hins vegar ekki nóg því ABC hætti snarlega við „Roseanne“, þættina sem Barr leikur aðalhlutverkið í. Í yfirlýsingu stöðvarinnar sagði að tíst Barr hefði verið „andstyggilegt, viðbjóðslegt“ og að það samræmdist ekki gildum stöðvarinnar.

Áður hafði Wanda Sykes, einn framleiðenda þáttanna, lýst því yfir að hún myndi ekki starfa lengur við þættina, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Emma Kenney, leikkona í þáttunum, segir hafa hringt í ABC til að tilkynna að hún væri hætt en henni hefði þá verið sagt að stöðin hefði þegar ákveðið að aflýsa þáttaröðinni.

Sagði George Soros hafa unnið með nasistum

Tíst Barr um Jarrett í morgun var svar við þræði með samsæriskenningum um að Jarrett hefði tekið þátt í að hylma yfir njósnar leyniþjónustunnar CIA. Barr er stuðningskona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og persóna hennar í þáttunum sömuleiðis.

Endurkoma þáttanna í sjónvarp hafði verið sumum stuðningsmönnum Trump fagnaðarefni af þessum sökum. Vel hafði verið tekið á móti þáttunum og horfðu átján milljónir manna á fyrsta þáttinn 27. mars.

Í gærkvöldi hafði Barr einnig reynt að tengja Chelsea Clinton, dóttur Hillary og Bill, við George Soros, ungversk-bandarískan auðjöfur, sem hefur undanfarin ár orðið að grýlu í hugum öfgahægrimanna. Sakaði Barr Soros meðal annars um að hafa unnið með nasistum þrátt fyrir að hann sé sjálfur gyðingur og hafi verið 9-14 ára gamall þegar síðari heimsstyrjöldin stóð yfir.

Donald Trump yngri, sonur Bandaríkjaforseta, áframtísti samsæriskenningum Barr um Soros. Forsetasonurinn hefur ítrekað tíst samsæriskenningum í gegnum tíðina.

Þetta var einnig fjarri því fyrsta skiptið sem Barr tísti framandlegum samsæriskenningum og níði. Sama dag og þættir hennar hófu göngu sína aftur tísti hún um að ungur maður sem lifði af mannskæða skotárás í framhaldsskóla í Parkland á Flórída hefði heilsað að nasistasið. Þá hefur hún dreift samsæriskenningu um að Hillary Clinton og aðrir háttsettir demókratar stæðu fyrir barnaníðshring í kjallara pítsustaðar í Washington-borg, að sögn Buzzfeed.

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.