Guðmundur Karl: Mjög slæmt ástand Þór Símon skrifar 20. ágúst 2018 20:57 Guðmundur í leik með Fjölni. vísir/getty
Guðmundur Karl var í kvöld hetja Fjölnis er hann jafnaði metin á lokasekúndum leiksins gegn Víkingum í Pepsi deild karla en leikurinn endaði 2-2. Þrátt fyrir jöfnunarmarkið var ekki bjart yfir Guðmundi en Fjölnir hefði þurft á sigri að halda í kvöld. „Úr því sem komið var þá var fínt að fá stig og höldum Víkingum allavega í augsýn. Hefði auðvitað verið mjög slæmt að tapa þessum leik,“ sagði Guðmundur sem segir það pirrandi að hafa ekki klárað leikinn með sigri. „Mér fannst við vera góðir í fyrri hálfleik og áttum að nýta færin okkar betur til að gera út um leikinn. Svo fáum við þetta víti líka en Víkingar komu sterkir inn í seinni hálfleikinn. „Pirrandi að fylgja ekki eftir góðri spilamennskunni í fyrri hálfleik eftir í þeim seinni,“ sagði Guðmundur en í stöðunni 1-1 fékk Fjölnir vítaspyrnu sem Andreas Larsen varði vel frá Þóri Guðjónssyni. Hann viðurkennir fúslega að ástandið sé slæmt en nú þegar fimm leikir eru eftir á Fjölnir eftir að mæta þremur efstu liðunum ásamt Grindavík og Fylki á útivelli. Gífurlega erfitt verkefni svo ekki sé meira sagt. „Þetta er mjög slæmt ástand og alls ekki bjart yfir þessu. Verðum að reyna að hafa trú á þessu og sækja einhverja punkta og vonast eftir hagstæðum úrslitum. Það er eina sem við getum gert núna,“ sagði Guðmundur og hélt áfram. „Það er allavega enginn að fara að gera þetta fyrir okkur. Við þurfum að hafa trú á verkefninu og vilja þetta. Ef við hefðum viljað þetta aðeins meira í kvöld þá hefðum við kannski unnið þennan leik,“ sagði Guðmundur. Stigið lyfti liðinu upp úr fallsæti en eins og staðan er þá er liðið með 16 stig, jafnmörg og Fylkir sem situr nú í 11. sæti
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Enski boltinn Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Handbolti Píla festist í fæti keppanda Sport Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Enski boltinn Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Fótbolti Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni Fótbolti Munu taka hart á því hversu lengi markvörður heldur á boltanum Fótbolti Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Golf Welbeck skaut Brighton áfram Enski boltinn Kenndi hárvörum um í umdeildu jafntefli Sport Fleiri fréttir Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld Sjá meira