Lífið

Chrissy Teigen svitnaði og táraðist þegar hún borðaði eldheita vængi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Teigen stóð sig mjög vel.
Teigen stóð sig mjög vel.
Ofurfyrirsætan Chrissy Teigen var á dögunum gestur í þætti First We Feast á You-Tube en þeir kallast einfaldlega Hot Ones.

Í þáttunum ræða þáttastjórnandinn, Sean Evens, og gesturinn saman en á sama tíma borða þau vel sterka vængi með mismunandi eldheitum sósum. Þetta var fyrsti þátturinn í sjöundu seríu þáttanna.

Saman fóru þau í gegnum feril Teigen sem hefur í gegnum tíðina verið þekkt fyrir það að liggja ekki á skoðunum sínum og tjáir sig reglulega á Twitter. Hún er um þessar mundir að gefa út matreiðslubókina Cravings: Hungry for More.

Verkefnið var ekkert sérstaklega auðvelt fyrir Teigen en hún svitnaði öll og táraðist í gegnum ferlið eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×