Lífið

Bieber tekur sér frí frá tónlist til að verja meiri tíma með Hailey

Atli Ísleifsson og Birgir Olgeirsson skrifa
Hailey Baldwin og Justin Bieber.
Hailey Baldwin og Justin Bieber. Vísir/Getty
Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber er í ótímabundnu leyfi frá tónlist þar til hann finnur út hvað það er sem hann langar að gera næst. 

Greint er frá þessu á vef bandaríska tímaritsins People en þar er hann sagður hafa minnkað við sig vinnu til að geta varið meiri tíma með eiginkonu sinni Hailey Baldwin.

People hefur eftir heimildarmanni sem stendur söngvaranum nærri að hann sé hamingjusamur og ánægður í dag.

Hann elski Hailey innilega og hún hvetji hann til að gera það sem hann langar. 

Bieber er sagður pirra sig á því þegar hann er spurður hvenær hann ætli að senda nýtt efni frá sér eða að halda tónleika. Heimildarmaðurinn bendir á að tónlistarmaðurinn ungi hafi unnið mikið í mörg ár og sé í fyrsta sinn í langan tíma að njóta þess að vera til og hafa engar vinnutengdar skuldbindingar. 

Er Bieber sagður leita að nýrri köllun, og það þarf ekki endilega að tengjast tónlist. Hann er sagður vilja gera heiminn betri og finna sér einhvern tilgang sem gerir hann hamingjusaman. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.