Leikjavísir

Nintendo gerir Switch fjarstýringar úr pappa

Samúel Karl Ólason skrifar
Nintendo Labo er ætlað börnum og þeim sem finnst gaman að haga sér eins og börn.
Nintendo Labo er ætlað börnum og þeim sem finnst gaman að haga sér eins og börn.
Tölvufyrirtækið Nintendo ætlar að gera eigendum Switch leikjatölvunnar kleift að búa til fjarstýringar og annan aukabúnað fyrir tölvuna úr pappa. Meðal annars geta spilarar búið til veiðistöng, mótorhjólastýri og jafnvel píanó. Markmið Nintendo er að gera leik á Switch skemmtilegri og þróa nýjar leiðir til að spila leiki.

Nintendo Labo er ætlað börnum og þeim sem finnst gaman að haga sér eins og börn.

Sala Nintendo Labo mun hefjast þann 20. apríl.

Blaðamaður The Verge fékk tækifæri á að prófa að setja saman nokkra hluti úr pappa og spreyta sig á leikjunum sem fylgdu. Hann segir það hafa komið sér skemmtilega á óvart. Það hafi bæði verið gaman og gefandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.