Bið Burnley lengist enn 13. janúar 2018 17:00 Sakho fagnar sigurmarki sínu gegn Burnley í dag. Vísir / Getty Jóhann Berg Guðmundsson spilaði allan leikinn þegar Burnley tapaði fyrir Crystal Palace á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag, 1-0. Bakary Sako skoraði eina mark leiksins á 21. mínútu eftir sendingu Christian Benteke. Sako átti þó heilmikið verk óunnið þegar hann fékk boltann og skoraði úr þröngu færi. Palace komst nálægt því að skora öðru sinni snemma í síðari hálfleik en Ben Mee náði að bjarga á marklínu. Burnley hefur nú tapað tveimur leikjum í röð og spilað sex deildarleiki í röð án þess að vinna. Síðasti sigurleikur liðsins kom gegn Stoke þann 12. desember. Burnley er í sjöunda sæti ensku deildarinnar með 34 stig en liðið hefur aðeins fengið þrjú af síðustu átján mögulegum. Crystal Palace, undir stjórn Roy Hodgson, vann hins vegar sinn annan sigur í röð og er í tólfta sæti með 25 stig. Enski boltinn