Bílar

Volvo XC60 öruggasti bíll í heimi

Finnur Thorlacius skrifar
Volvo XC60 er nýkominn af nýrri kynslóð.
Volvo XC60 er nýkominn af nýrri kynslóð.
Samkvæmt prófunum hjá bæði Euro NCAP í Evrópu og IIHS í Bandaríkjunum er Volvo XC60 sportjeppinn öruggasti bíll heims. Volvo XC60 hlaut einkunnina Top Safety Pick+ hjá IIHS umferðaröryggisstofnuninni, en afar fáir bílar náði þeirri einkunn á síðasta ári. Í prófunum IIHS á Volvo XC60 bílnum fékk hann hæstu mögulega einkunn á öllum sviðum nema hvað varðar aðalljós bílsins.

Volvo XC60 náði einnig hæstu einkunn sem mæld hefur verið af Euro NCAP og áttu hin ýmsu öryggiskerfi sem er í Volvo XC60 bílnum mikinn þátt í því, en hann fékk einnig frábæra einkunn í árekstrarprófunum. Svo háa einkunn fékk XC60 að hann toppaði alla aðra bíla á öllum sviðum mælinganna (adult occupant protection, child occupant protection, pedestrian protection and safety assist).

Volvo XC60 var reynsluekið af blaðamanni visir.is og Fréttablaðsins um daginn í Barcelona og reyndist hann frábær bíll í akstri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×