Lífið

Kíló af vængjum yfir Súperskál

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Brynjar Birgisson hefur verið oft hressari í vinnunni á mánudegi.
Brynjar Birgisson hefur verið oft hressari í vinnunni á mánudegi. VÍSIR/EYÞÓR

Brynjar Birgisson er enginn nýgræðingur þegar kemur að Ofurskálinni, hann hefur horft á þennan risaviðburð síðustu 19 árin – hann viðurkennir þó að hafa þurft að sleppa tveimur eða þremur leikjum á þessu tímabili. Hann hefur oft átt erfiðar stundir í vinnu daginn eftir þó að hann hljómi grunsamlega hress þegar blaðamaður nær tali af honum.

„Ég datt inn í þetta árið 1999 þegar ég náði leik endursýndum daginn eftir á Sýn – eftir það keypti ég Madden-tölvuleikinn og varð bara „húkkt“ á þessu. Í leiknum lærði ég allar reglurnar og er alltaf settur í það í vinahópnum að útskýra reglurnar, hvað telst grip og af hverju má kasta boltanum þarna en ekki þarna… það er svona mitt hlutverk. Aðrir sjá um matinn, ég sé um reglurnar.“

Gríðarleg reynsla Brynjars nær þó lengra en aðeins til regluverksins flókna í þessari amerísku boltaíþrótt. Hann hefur einnig gríðarlega reynslu af því að vaka langt fram eftir nóttu yfir keppninni um þessa mögnuðu skál og innbyrða gríðarlegt magn af mat og drykk. Líklega er það athæfi sem lýðheilsu- og næringarfræðingar myndu ekki mæla með.

„Við erum búin að fara „all in“ varðandi matinn í núna sex eða sjö ár. Það sem við höfum lagt hvað mesta áherslu á eru kjúklingavængirnir. Hann Hafsteinn vinur minn er held ég búinn að fullkomna kjúklingavængi. Ég sver það að ég borð- aði bestu kjúklingavængi, á Íslandi allavega, í gær. Ég borðaði örugglega kíló af vængjum, hálft kíló af kleinuhringjum, endalaust af einhverjum drykkjum. Það var Coors Light og Miller, mánudagar eru „Miller time“ þannig að eftir miðnætti fengum við okkur Miller.“

Hvernig er þá stemmingin daginn eftir allan þennan hedónisma; þetta óhóf í drykk og mat með þetta mikla svefnleysi? Hver eru eftirköstin?

„Stemmingin er ekki góð. Ég er reyndar ekki áfengis-þunnur en matarþynnkan og áfengisþynnkan eru tvær mismunandi skepnur. Matarþynnkan hefur auðvitað mest áhrif á meltinguna og er aðallega út af vængjunum – þeir eiga til að gera meltinguna yfir daginn mjööög vafasama. Ég hef verið að vinna mikið með börnum á bæði leikskólum og frístundamiðstöðvum þannig að það er alveg rosalegt að vera búinn að borða tvö kíló af mat, sofa í þrjá tíma og mæta svo í vinnuna þar sem eru fjögurra ára krakkar öskrandi á mann.“

Ert þú að taka þátt í meistaramánuðinum?

„Nei. Það bara helst ekki í hendur við Super Bowl-lífsstílinn.“


Tengdar fréttir

Sjáðu Super Bowl hálfleikssýningu Justin Timberlake

Philadelphia Eagles varð í nótt NFL-meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 41-33 sigur á fráfarandi meisturum New England Patriots í Super Bowl, úrslitaleik ameríska fótboltans, í Minneapolis í nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.