Giroud komst á blað í þægilegum bikarsigri Anton Ingi Leifsson skrifar 16. febrúar 2018 21:45 Giroud meiddist á höfði í kvöld og spilaði með sárabindi út leikinn. Vísir/getty Chelsea lenti í engum vandræðum með B-deildarlið Hull á heimavelli í 16-liða úrslitum enska bikarsins, en leikurinn var afar auðveldur fyrir Englandsmeistarana. Eftir rúma eina mínútu kom Brasilíumaðurinn Willian Chelsea yfir og á 27. mínútu skoraði Pedro annað mark Chelsea. Fyrir hlé skoraði Willian annað mark sitt og Oliver Giroud gerði fjórða mark Chelsea. Þetta var fyrsta mark Giroud fyrir Chelsea frá því hann gekk í raðir liðsins frá Arsenal. Staðan var 4-0 í hálfleik, en í síðari hálfleik urðu mörkin ekki fleiri. Þægilegt fyrir Chelsea sem er ásamt Leicester komið í átta liða úrslitin. Enski boltinn