Sat hann Brúneyju frá Grafarkoti, sem er mikið rútíneruð í þessari keppnisgrein. Athygli vekur að þrír efstu knaparnar tefldu allir fram hryssum í T2, sem er snúnari grein að vera góður í en margur ætlar.
Slaktaumatölt reynir meðal annars mjög á jafnvægi hestsins og reiðmennskuhæfni knapans.
„Hún var góð á slaka taumnum og þetta gekk bara fínt,“ sagði Teitur að lokinni forkeppni. Hann sagðist nokkuð sáttur með sýninguna en að hans sögn hefði Brúney þó getað verið betri á fyrstu tveimur atriðunum, tölti á frjálsri ferð og hægu.
Frumburður Teits og Eyrúnar Ýrar Pálsdóttur, pattaralegur drengur, kom í heiminn degi fyrir keppnisdag og var honum óskað til hamingju með það. „Það er náttúrlega bara stórkostlegt,“ sagði Teitur spurður um föðurhlutverkið.
Sýningu Teits og Brúneyjar frá Grafarkoti í forkeppninni í T2 má sjá í meðfylgjandi myndskeiði, en bein útsending var frá mótinu á Stöð 2 Sport.
Top reiter stendur nú efst í liðakeppninni með 101,5 stig.
Niðurstöður A-úrslita í slaktaumatölti T2 í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum voru eftirfarandi:
1. Jakob Svavar Sigurðsson, Júlía frá Hamarsey - 8.66
2. Viðar Ingólfsson, Pixi frá Mið-Fossum - 8.33
3. Teitur Árnason, Brúney frá Grafarkoti - 7.87
4. Elin Holst, Frami frá Ketilsstöðum - 7.41
5. Bergur Jónsson, Herdís frá Lönguhlíð - 7.20
6. Gústaf Ásgeir Hinriksson, Skorri frá Skriðulandi - 7.20