„Þetta er kartöfluflögur sem framleiddar eru úr kartöflum sem hefðu annars lent í ruslinu,“ segir Viðar, framkvæmdastjóri Ljótu kartaflnanna, spurður út í snakkið. „Hugmyndin kviknaði fyrir löngu síðan en upphaflega ætlaði ég bara að gera íslenskar kartöfluflögur úr íslensku hráefni, það hefur aldrei verið gert hérna heima. En svo þegar ég fór að prófa mig áfram þá sá ég að það er óheyrilegt magn kartaflna sem fer til spillis vegna útlitsgalla.“
Viðar bendir þá á að það felist mikil mengun í því að flytja inn erlent snakk. „Snakk er umfangsmikil vara sem verið er að flytja inn enda inniheldur hver poki mikið loft. Og snakk er vel hægt að búa til hér heima. Umhverfisþátturinn er augljós.“
Skemmtilegir kartöflukarakterar
Spurður út í hvort hann sé samkeppnishæfur við erlenda snakkframleiðendur hvað varðar verð segir Viðar: „Nei, ég er ekki samkeppnishæfur í verði, ekki á meðan framleiðslan er lítil eins og hún er í dag. En pælingin er að fá neytendur til að vanda valið. Núna erum við að einblína á að selja Ljótu kartöflurnar í litlum verslunum, á börum, veitingastöðum og hótelum.Umbúðir Ljótu kartaflnanna vekja eftirtekt en snakkpokarnir eru glærir og skreyttir skemmtilegum fígúrum.
„Þetta er glært plast sem er svo prentað á. Plastið er glært, bæði til að það sé hægt að sjá vöruna en líka til að einfalda flokkun. Allt annað snakk er í álþynnupokum sem er úr einhverri plastog álblöndu. Karakterarnir á umbúðunum eiga svo allir sína sögu. Í framhaldinu munum við leika okkur meira með þá í markaðssetningu,“ segir Viðar spenntur fyrir framhaldinu