Flíkurnar sem hann er þekktur fyrir að hafa komið í tísku voru til staðar, eins og stóru hettupeysurnar, sokkastígvélin og jakkafatajakkar. Mikið var um mynstur, og þá sérstaklega á jökkunum og kápunum. Köflótt, blómamynstur og jafnvel dýramunstur voru sýnileg, og öllu var blandað saman.
Risastóru töskurnar voru einnig til staðar, merktar Balenciaga-merkinu, sem verða án efa vinsælar í sölu. Stíliseringin vakti líka mikla athygli, þar sem jakkar og kjólar voru hafðir undir risastórum kápum.
Demna hefur einnig látið til sín taka í góðgerðarmálum, þar sem hann hefur vakið athygli á yfirframleiðslu fatnaðar í samstarfi við bresku verslunina Harrod's. Í þessari línu voru bolir sem stóð á "Balenciaga Support's The World Food Programme," en það eru samtök sem tileinka sér matarhjálp í þriðja heims ríkjum.
Það þykir ekki skrýtið að Demna Gvasalia skuli vera svona vinsæll, og ef marka má þessa línu og önnur málefni sem hann hefur tekið að sér, þá munu vinsældir hans ekki fara dvínandi á næstunni.







