Marsspá Siggu Kling – Sporðdrekinn: Þú ert stórkostlega orðheppinn 2. mars 2018 09:00
Elsku Sporðdrekinn minn, lífið á að vera skemmtilegt og það er undir þér sjálfum komið að hafa það þannig, svo það er mjög mikilvægt fyrir þig að henda út hversdagsleikanum og leyfa barninu í hjarta þínu að sleppa út. Það er svo leiðinlegt að verða fullorðinn og verða eitthvað of fullorðins, maður tekur allt of alvarlega of verður of hræddur við allt og alla. Þú fæðist að vetri til og þarft svo mikinn kraft til að spjara þig og þú lærir það snemma að þurfa mikinn styrk til að hressa þig við og að leika þér. Seigasta og stöðugasta fólkið kemur úr Sporðdrekanum, en það er svo mikilvægt þú skoðir hvað þú ert margbreytilegur og að þú leyfir þér að sleppa vananum. Flestallt eru venjur, maður venur sig á að vakna klukkan 7, að horfa á RÚV, venur sig á að drekka rauðvín á kvöldin og svo framvegis, allt eru þetta venjur eða rútína. Þú ert að fara inn í kraftmikið tímabil sem þú getur nýtt til að breyta þeim venjum sem eru að drepa þig úr leiðindum og gefa þér ekkert. Þú ert með svo spennandi hugarflug og drauma, en vilt halda þeim niðri til að sýna sjálfstjórn af því að það var það sem þú lærðir að gera frá því þú fæddist og fyrstu árin þín í lífinu. Farðu nú að drífa í að koma hugmyndum þínum og draumum á framfæri, hættu að sitja einhversstaðar þar sem enginn tekur eftir þér, því þú ert stórkostlega orðheppinn, skemmtilegur og heillandi. Agi er ekki lykillinn að þroska, heldur er það elsku hjartað mitt að elska sjálfan sig, getur þú litið núna í spegilinn og sagt: Mikið hryllilega ertu frábær og ég elska þig? Bara þetta einfalda atriði kemur þér skrefi lengra í öllu sem þú gerir og ekki orð um það meir! Ástarsambönd þín hafa mjög mikil áhrif á þig og þegar þú ert á lausu hættir þér til að vera heltekinn af ástinni og að sjálfsögðu ert þú þá manneskjan sem gefur og gefur, en það er svosem allt í lagi ef þér finnst það í lagi. En er ekki kominn tími til að breyta fyrir þá sem eru fastir í vitlausum hjólförum vanans? Setningin er: Farðu og leiktu þér, lífið er Ding a Dong
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Maggie Smith er látin Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Fleiri fréttir Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Sjá meira