Southampton í undanúrslit FA-bikarsins Einar Sigurvinsson skrifar 18. mars 2018 15:30 Michael Jacobs mætir Cedric Soares í leiknum í dag. getty Southampton hafði betur á móti Wigan í 8-liða úrslitum enska bikarsins í dag. Leiknum lauk með 2-0 sigri Southampton. Wigan fóru illa með færi sín í leiknum og kom mark fyrsta mark leiksins frá Pierre-Emile Højbjerg gegn gangi hans. Hann kom Southampton yfir á 62. mínútu eftir hornspyrnu frá Dusan Tadic. Skömmu síðar braut Dan Burn á Manolo Gabbiadini innan vítateigs. Gabbiadini fór sjálfur á punktinn en Christian Walton í marki Wigan varði spyrnuna. Cedric Soares gulltryggði síðan Southampton áfram þegar hann kom Southampton í 2-0 á 92. mínútu. Southampton eru því komnir í undanúrslit enska bikarsins ásamt Tottenham og Manchester United. Seinna í dag leika Leicester og Chelsea um síðasta lausa sætið í undanúrslitunum. Enski boltinn