,,Loð? Ég er búin með það. Ég vil ekki drepa dýr til að búa til tísku. Það er ekki rétt," sagði ítalski fatahönnuðurinn í samtali við The Economist. Á heimasíðu Versace er enn verið að auglýsa loðkápur, en nú fara hlutirnir að breytast hjá Versace.
Það eru hins vegar ekki allir ánægðir með þessar fréttir.
Mark Oaten, forstjóri International Fur Federation er hins vegar ekki ánægður með fréttirnar. ,,Ég er mjög vonsvikinn að heyra að Versace ætli ekki að nota alvöru loðfeld í fatalínum sínum. Flestir aðalhönnuðirnir í dag halda áfram að vinna með loð því þeir vita að þetta er náttúruleg vara sem er framleidd með ábyrgum hætti. Með vaxandi áhyggjum af umhverfinu og plastnotkun í tískuheiminum þá trúi ég að loðfeldur er náttúrulegt og ábyrgt val fyrir hönnuði og neytendur."
