Tottenham í undanúrslit FA bikarsins Einar Sigurvinsson skrifar 17. mars 2018 13:45 Christian Eriksen. visir/getty Tottenham var ekki í vandræðum með Swansea í 8-liða úrslitum enska FA bikarsins í dag. Leiknum lauk með 3-0 sigri Tottenham en leikurinn fór fram í Wales. Christian Eriksen kom Tottenham yfir á 11. mínútu leiksins með frábæru skoti fyrir utan teiginn. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins bætti Erik Lamela síðan við öðru marki Tottenham. Christian Eriksen var síðan aftur á ferðinni á 62. mínútu leiksins þegar hann kom Tottenham í 3-0. Tottenham er fyrsta liðið til að tryggja sig inn í undanúrslit enska FA bikarsins. Klukkan 19:45 í dag mun Manchester United taka á móti Brighton á Old Trafford í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Seinni tveir leikir undanúrslitanna fara síðan fram á morgun. Wigan og Southampton mætast síðan klukkan 13:30 á morgun. Leicester tekur því næst á móti Chelsea klukkan 16:30. Enski boltinn