Hin 25 ára Netta Barzilai frá Ísrael er talin langlíklegust til að vinna Eurovision í Lissabon í næsta mánuði. Hún er efst í öllum veðbönkum um alla Evrópu en hún flytur lagið Toy á fyrra undanúrslitakvöldinu 8. maí, rétt eins og Ari Ólafsson sem flytur lagið Our Choice.
Veðbankar spá Ara ekki góðu gengi í Eurovision og spáir í raun enginn veðbanki að hann komist upp úr undanriðlinum.
Netta er aftur á móti að slá í gegn og hefur til að mynda verið horft tólf milljón sinnum á Eurovision-myndband hennar á YouTube en það er langmest af öllum keppendum í ár.
Hún vann undankeppnina í Ísrael með miklum yfirburðum en stíll hennar þykir mjög framúrstefnulegur og skemmtilegur.
Netta notar tæknina vel í atriði sínu og styðst við það sem kallast Voice-Loop. Hér að neðan má hlusta á lagið sem er talið sigurstranglegast.
Ari Ólafsson kom fram á stórtónleikum í Tel Aviv í vikunni og komst vel í gegnum sinn flutning þrátt fyrir tæknilegir erfileikar hafi komið upp á sviðinu.
Svokallað innra eyra klikkaði hjá Ara og slökknaði á risaskjá fyrir aftan hann í miðjum flutningi. Hann flutti lagið fyrir framan tólf þúsund manns og er í miklu kynningarstarfi um alla Evrópu. Hér að neðan má sjá flutning Ara.
Lífið