Lífið

Breytt mynd Skálmaldar í Bretlandstúr

Benedikt Bóas skrifar
Skálmöld í öllu sínu veldi en nú vantar tvo í túrinn, þá Gunna Ben og Baldur.
Skálmöld í öllu sínu veldi en nú vantar tvo í túrinn, þá Gunna Ben og Baldur.
Helga er búin að leysa Gunnar af hólmi tvisvar áður en þetta er fyrsti túr Einars. Við fengum hugmyndina um að fá Einar á miklum neyðarfundi þegar í ljós kom að Baldur og frú ættu von á sér og hann sagði nánast já áður en við spurðum hann,“ segir Snæbjörn Ragnarsson, bassafantur Skálmaldar, en hljómsveitin er nú stödd í Bretlandi þar sem hún mun troða upp á fimm tónleikum á fimm dögum.

Hljómsveitin kom fram á The Fiddlers í Bristol í gær, heldur svo til Manchester í dag og verður í Dublin á morgun. Einar er einn fremsti gítar leikari landsins og getur brugðið sér í hvaða líki sem er á sviðinu. Og nú er komið að því að reima á sig metalskóna.

„Ég sagði já strax og ég var spurður. Þurfti nánast ekkert að hugsa mig um. Þetta verður stuð og mig hefur lengi langað til að spila þungarokk aftur enda hljómar það dásamlega í mínum eyrum, það var mín fyrsta ást – mín eina í svo langan tíma,“ segir Einar fullur tilhlökkunar.

„Þegar maður kynntist þessum ofsalegu böndum sem gáfu út nýjar plötur á sínum tíma, Iron Maiden, Judas Priest, Dio, Metallica, át ég þetta allt upp. Á tímabili var ekkert nógu þungt fyrir mig. Mér fannst Slayer meira að segja vera of léttir,“ segir Einar. 

Skálmeldingar eftir lokaæfingu fyrir túrinn til Bretlands. Frá v.: Björgvin, Snæbjörn, Einar, Jón Geir, Helga og Þráinn Árni.
Snæbjörn segir að það sé erfitt að fara í þungarokksskó Baldurs, þeir séu ansi stórir.

„Ef einhver getur það þá er það Einar. Við ákváðum að athuga hvort hann væri laus eða hvort hann hefði hug á að gera þetta og náðum varla að spyrja áður en hann var búinn að segja já.“

Skálmöld er nýbúin að taka upp plötu en Snæbjörn segir að engin ný lög verði á rokkmatseðlinum í Bretlandi.

„Sú plata kemur í september vonandi og við trúlega tísum smá með Sinfóníuhljómsveitinni en þar fyrir utan þá verður ekkert.“

Tónleikar Skálmaldar

Manchester

Rebellion

7. apríl

Dublin

Voodoo Lounge

8. apríl

Belfast

Limelight

29. apríl

Glasgow

Audio

30. apríl

Nottingham

Rescue Room

1. maí


Tengdar fréttir

Seldist upp á 12 mínútum

Miðar á tónleika Skálmaldar og Sinfó í ágúst seldust upp á örskotsstundu. Snæbjörn Ragnarsson segir að unnið sé að því hörðum höndum að setja saman þriðju tónleikana en gríðarlegur fjöldi kemur að þeim og því þurfa margir frá að hverfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.