Salah jafnaði markametið í dramatísku jafntefli Dagur Lárusson skrifar 21. apríl 2018 13:30 Salah jafnaði markametið. vísir/getty Mohamed Salah jafnaði markamet ensku úrvalsdeildarinnar í 2-2 jafntefli Liverpool gegn West Brom nú rétt í þessu en þetta var 31 deildar mark Salah á tímabilinu. Liverpool byrjaði leikinn með miklum krafti og sótti stíft fyrstu mínúturnar. Á fjórðu mínútu fékk Sadio Mané boltann á vinstri vængnum og lék hann skemmtilega á Jay Rodriguez og gaf inná teiginn þar sem enginn annar en Danny Ings var mættur og skoraði sitt fyrsta deildarmark í langan tíma og leiddu gestirnir í hálfleiknum. Í seinni hálfleiknum færðu liðsmenn West Brom sig aðeins framar á völlinn sem gerði það að verkum Liverpool fékk fleiri skyndisóknir og náði Liverpool að nýta sér eina slíka á 72. mínútu. Oxlade Chamberain fékk þá boltann á miðjunni og gaf frábæra sendingu á Mohamed Salah sem hafði tekið frábært hlaup þvert yfir vörn West Brom og vippaði hann boltanum frábærlega yfir Ben Foster í markinu og jafnaði þar með markametið. Allt stefndi í öruggan sigur Liverpool en annað átti eftir að koma í ljós. Á 79. mínútu fékk West Brom hornspyrnu sem skapaði mikinn usla í teig Liverpool og endaði það með því að Jake Livermore kom boltanum í netið og minnkaði muninn. Eftir þetta mark vöknuðu liðsmenn West Brom og sóttu stíft næstu mínúturnar. Oliver Field fiskaði ódýra aukaspyrnu á 88. mínútu sem Chris Brunt tók og var það Salomon Rondon sem náði að skalla boltann í netið og jafna metin fyrir West Brom. Jafntefli var lokastaðan í þessum leik og er Liverpool með 71 stig í þriðja sæti eftir þennan leik á meðan West Brom situr sem fastast á botninum með 25 stig. Enski boltinn