Lífið

Tæklaðu prófatörnina með stæl

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Hér sitja líklega bæði nördar og töffarar.
Hér sitja líklega bæði nördar og töffarar. Vísir/ernir
Nú standa yfir próf og það er ansi erfiður tími.

Þetta er hægt að tækla á margvíslegan hátt og hér má sjá tvö sjónarhorn á þetta tímabil auk almennrar ráðgjafar um hina ýmsu fylgikvilla prófatíðarinnar ógurlegu.

Nördið

Samviskusama nördið gerir allt eftir bókinni í prófum og mælir Fréttablaðið sérstaklega með að allir tileinki sér þann lífsstíl.

Snemma að sofa

Nördið fer eldsnemma að sofa og vaknar fyrr til að lesa. Það er bara svo mikið betra fyrir heilann og heldur manni sem skýrustum.

Drekka mikið vatn

Reglulegar vatnspásur eru mikilvægur hlekkur í prófa-rútínu nörds­ins. Ofþornun er ekki góð fyrir einbeitinguna og það er gott að vera vel vökvaður. Góður plús er að tíðar ferðir til að ná í vatn vinna á móti of löngum setustundum.

Hollt snakk

Það er mikilvægt að vera með hollt snakk við höndina – rófur, gulrætur eða annað rótargrænmeti er alveg tilvalið til að maula við lesturinn og það getur líka virkað sem stressbani að vera að tyggja eitthvað.

Jafn og þéttur lærdómur

Að hafa glósað vel og lesið jafnt og þétt yfir önnina kemur í veg fyrir stress og veldur því að maður fer inn í prófatörnina með ágætis þekkingu á efninu þannig að próf­lesturinn er í raun bara létt upprifjun.

Ekkert koffín eða sykur

Kaffivíman er bara plat og samviskusamur námsmaður ætti alls ekki að stóla á hana. Góður átta tíma svefn er mun betri en skyndiorkan sem sykur og koffín veita manni.

Göngutúrar

Það er hollt að standa upp við og við og skella sér í stuttan göngutúr. Ferskt loft og aukið blóðflæði er meðal þeirra þátta sem göngutúrinn bætir auk þess sem það er mjög gott að hugsa á göngu.

Nördið tók alla önnina með gleraugun á nefinu með bók yfir andlitinu.

Töffarinn

Það er fátt meira töff en að vera alveg sama og „krönsa“ bara rétt fyrir próf. Lífið er of stutt til að vera sífellt að hugsa um skólann.

„All-nighter“

Besta leiðin til að tvöfalda tímann fram að prófi er að sleppa því að sofa. Það að liggja meðvitundarlaus uppi í rúmi er ekkert nema tímaeyðsla sem væri mikið betur nýtt í að lesa yfir heilan áfanga.

Sjúkrapróf

Annað gott bragð til að næla sér í auka klukkustundir er að skrá sig í sjúkrapróf og vera áhyggjulaus aðeins lengur.

Fá glósur

Það er mikilvægt að kynnast mesta nördinu á námskeiðinu við byrjun annar og rækta sambandið nægjanlega til að geta fengið glósurnar frá nördinu. Góðar glósur (frá einhverjum öðrum) eru gulli betri.

Orkudrykkir, ekki kaffi

Kaffi veldur niðurgangi, svitakófi og skjálfta í of miklu magni. Það er miklu betra að sturta í sig sykruðum orkudrykkjum sem innihalda auk koffíns og sykurs gífurlegt magn af gvarana og einhverjum fleiri geggjuðum efnum.

Gefast upp

Það er mjög mikilvægt að kunna að gefast upp. Þegar þú sérð að þú ert aldrei að fara að ná að læra nógu mikið fyrir prófið er æðruleysið besta vopnið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×