Ekkert lið hefur byrjað betur en Grindavík undanfarin tvö sumur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2018 15:30 Aron Jóhannsson skoraði sigurmarkið gegn Víkingum og fyrra mark Grindavíkur gegn Val. Vísir/Daníel
Strákarnir hans Óla Stefáns Flóventssonar eru annað árið í röð að byrja Pepsi-deild karla í fótbolta af miklum krafti en líkt og í fyrra er Grindavíkurliðið með jafnmörg stig og topplið deildarinnar eftir fyrstu sex umferðirnar. Grindavík var með 13 stig í fyrstu sex umferðunum í fyrra eins og lið Stjörnunnar og Vals. Í ár hafa Grindvíkingar náð í 11 stig í fyrstu sex umferðunum eða jafnmörg stig og Breiðablik og FH en þessi lið eru með jafnmörg stig í 1. til 3. sæti deildarinnar. Ef við leggjum saman fyrstu sex umferðirnar í Pepsi-deildinni undanfarin tvö sumur þá hefur ekkert lið í deildinni gert betur en Grindavík. Grindavíkurliðið hefur unnið 7 af þessum 12 leikjum og aðeins tapað tveimur leikjum í 1. til 6. umferð 2017-18. Markatala liðsins er 17-12 eða +5. Traustur varnarleikur á mikið í þessum árangri Grindavíkurliðsins enda er liðið aðeins í 6. sæti yfir flest mörk skoruð í þessum umferðum. Ekkert þeirra liða sem hafa spilað bæði tímabilin í deildinni hefur aftur á móti fengið á sig færri mörk. Eina tapið í sumar kom á móti FH og eina tapið í fyrra kom á móti Víkingi úr Ólafsvík. Grindvíkingar hafa náð tveimur stigum meira í þessum umferðum en Valsmenn og fjórum stigum meira en Stjarnan, FH og Breiðablik.Flest stig í 1. til 6. umferð Pepsi-deildar karla 2017-2018: 1. Grindavík 24 stig (+5) 2. Valur 22 stig (+6) 3. Stjarnan 20 stig (+9) 4. FH 20 stig (+6) 5. Breiðablik 20 stig (+3) 6. KA 16 stig (+3) 7. KR 16 stig (+1) 8. Fjölnir 16 stig (-2) 9. Víkingur R. 13 stig (-2) 10. ÍBV 12 stig (-9) ÍA (3 stig), Víkingur Ó. (3 stig), Fylkir (8 stig) og Keflavík (2 stig) spiluðu bara annað af þessum tveimur tímabilum í deildinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Handbolti „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Fleiri fréttir Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Sjá meira