Veiði

Laxveiðisumarið hafið - frábær opnun við Urriðafoss

Karl Lúðvíksson skrifar
Stefán með fyrsta lax sumarsins úr Urriðafossi í Þjórsá
Stefán með fyrsta lax sumarsins úr Urriðafossi í Þjórsá Mynd: Iceland Outfitters
Laxveiðisumarið er formlega hafið með opnun veiðisvæðisins við Urriðafoss í Þjórsá og það er óhætt að segja að byrjunin lofi góðu.

Urriðafoss var með langbestu aflatölu per stöng í fyrra þegar hátt í 800 laxar komu á land á aðeins tvær stangir.  Eftir svona veiðitölur var auðvelt að selja fyrir þetta sumar sem nú er hafið og er svo komið að lítið er eftir af stöngum á svæðinu. Opnunin í gær var frábær en alls komu 10 laxar á land og aðrir 9 sluppu af flugum veiðimanna.   Laxinn kemur vel haldinn úr sjó og voru þetta allt vænir tveggja ára laxar sem veiddust.  Stærðirnar voru 75-91 sm.

Það sem verður spennandi að sjá í sumar er síðan hinn bakkinn á móti Urriðafossi sem heitir Þjórsártún en þar hefst tilraunaveiði í sumar.  Samkvæmt Stefáni Sigurðssyni hjá Iceland Outfitters sem eru leigutakar á báðum svæðum gengur líklega nokkuð af laxi þar með bakkanum alveg eins og við Urriðafoss svo selt verður á svæðið í sumar í tilraunaskyni og verðinu eftir því stillt í hóf.  Það var einmitt Stefán sem fékk fyrsta laxinn í gær og þar með fyrsta laxinn á land í sumar.






×