Fulham tryggði sér síðasta úrvalsdeildarsætið 26. maí 2018 18:00 Leikmenn Fulham fagna mark Tom Cairney. vísir/getty Birkir Bjarnason var ónotaður varamaður er Aston Villa tapaði 1-0 fyrir Fulham í úrslitaleik um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Leikurinn var rólegur framan af en Fulham voru ívið sterkari aðilinn. Ekki voru mörg færi sem litu dagsins ljós en Fulham áttu þau hættulegri. Eina mark leiksins kom á 23. mínútu en þá skoraði fyrirliðinn Tom Cairney eftir frábæran undirbúning hins bráðefnilega, Ryan Sessegnon. Denis Odoi fékk að líta sitt annað gula spjald á 70. mínútu og Fulham lék síðustu tuttugu mínúturnar einum færri. Allt kom fyrir ekki og þeir náðu að landa 1-0 sigri. Fulham er því komið í deild þeirra bestu ásamt Cardiff og Wolves en Aston Villa verður áfram í B-deildinni. Enski boltinn