Lífið

Það sem Jessie J vill baksviðs

Benedikt Bóas skrifar
Frá tónleikum Jessie J í Laugardalshöll árið 2015.
Frá tónleikum Jessie J í Laugardalshöll árið 2015. VÍSIR/ANTON BRINK
Stórstjarnan Jessie J heldur tónleika í Laugardalshöll í kvöld. Þetta er í annað sinn sem hún kemur til Íslands. Lagið hennar Bang Bang hefur fengið yfir milljarðs áhorf á Youtube. Og eins og stórstjörnu sæmir er hún með kröfur um veitingar baksviðs.

Stutt er í nýja plötu frá listakonunni. Jessie J kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2011 með fyrstu plötunni sinni Who You Are en á þeirri plötu komust sex lög á topp tíu í Bretlandi en lagið Price Tag fór í efsta sætið um allan heim.

Er hún fyrsti kvenmaðurinn sem nær sex lögum af sömu plötu inn á topp 10. Lagið Domino kom svo næst og fór það beint í efsta sæti um allan heim en með því lagi náði Jessie J fótfestu í Bandaríkjunum.

Með ofursmellinum Bang Bang, þar sem hún fær Ariana Grande og Nicky Minaj með sér, er hún virkilega búin að stimpla sig inn sem ofurstjarna. Jessie J hefur af mörgum talin vera með eina albestu söngrödd poppheimsins í dag. Margir sáu hana árið 2012 í sjónvarpinu á lokaathöfn Ólympíuleikanna í London, þar sem hún söng We Will Rock You með hljómsveitinni Queen. Hún hefur einnig verið þjálfari í bresku þáttunum The Voice.

 Hún semur flest lögin sín sjálf en áður en hún hóf söngferil sinn vann hún við að semja lög fyrir aðra. Hefur hún m.a. samið fyrir Miley Cyrus. Justin Timberlake, Chris Brown, David Guetta og marga fleiri. Yfir milljarður manna hefur horft á lagið Bang Bang á Youtube. Um 700 milljónir hafa horft á Price Tag, Domino hefur 260 milljón áhorf. Síðustu tónleikar Jessie J í Laugardalshöll voru algerlega frábærir en það seldist upp á þá tónleika á innan við sólarhring.

Listinn

  • 6 lítraflöskur af vatni við stofuhita
  • 12 litlar flöskur af vatni við stofuhita
  • 1 pakki af piparmintutei (án koffíns)
  • 1 hreinn trönuberjasafi
  • 1 flaska af sódavatni
  • 4 sítrónur
  • 1 poki af hind-, bróm- og bláberjum
  • 1 stórt, ferskt engifer
  • 2 stórir pokar af grænmetisflögum
  • 1 poki af kasjúhnetum, léttsöltuðum
  • 1 poki pistasíuhnetur
  • 1 pakki af kókoshnetustöngum
  • 1 poki sólblómafræ
  • 1 pakki af tekexi
  • 1 poki af ostapoppi
  • 1 krukka af hummus
  • 1 pakki af litlum gulrótum
  • 1 gúrka
  • 1 rauðvín, Pinot Noir Malbec
  • 1 ferskur ananasdjús
  • 6 bananar
  • 6 litlar appelsínur
  • 2 pakkar af mintutyggjói

    Raftæki:
  • 1 ketill
  • 1 ísskápur fyrir alla drykkina, nema vatnið
  • 1 gufugæi
  • 2 framlengingarsnúrur og straumbreytir fyrir enska hleðslu
 


Tengdar fréttir

Jessie J sló í gegn - Myndir

Breska tónlistarkonan Jessie J tróð upp í í Laugardalshöll í gærkvöldi og heppnuðust tónleikarnir virkilega vel.

Mögnuð ábreiða Maríu Ólafs á lagi Jessie J.

Söngkonan María Ólafsdóttir hefur nú sent frá sér nýtt myndband en það er við lagið, Who You Are eftir Íslandsvininn Jessie J. Myndbandið er tekið upp í hljóðverinu Hljóðverki, þar sem lagið er einnig tekið upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.