Lífið

Rapparinn Drake ásakaður um að afneita eigin syni

Bergþór Másson skrifar
Drake og Pusha T, sem hafa átt í útistöðum upp á síðkastið.
Drake og Pusha T, sem hafa átt í útistöðum upp á síðkastið. Metro
Kanadíski tónlistarmaðurinn Drake hefur ekki átt sjö dagana sæla um þessar mundir. Í nýútgefnu lagi rapparans Pusha T, „The Story of Adidon,“ er Drake ásakaður um að afneita syni sínum og barnsmóður, ásamt öðru. Umrætt lag Pusha T þar sem hann kallar Drake öllum illum nöfnum og ávítar hann fyrir slæma frammistöðu í föðurhlutverkinu hefur vakið mikla athygli og valdið mikilli ólgu í rappheimi Vestanhafs.

Í lok maí gaf rapparinn Pusha T, sem er best þekktur sem hægri hönd Kanye West, út plötuna „DAYTONA.“ Á plötunni skaut hann föstum skotum í áttina að Drake. Pusha T rifjaði meðal annars upp þann orðróm sem gengið hefur um rappheiminn í nokkur ár, að Drake skrifi ekki sína eigin texta. Textasmíð er tekin alvarlega í heimi hip hops, ólíkt heimi popp tónlistar, og þar af leiðandi er sú ásökun að sinna sinni textasmíð ekki sjálfur, tekin mjög alvarlega. Einnig ber að nefna að rapp kúltúr einkennist af mikilli samkeppni og eru rapparar ófeimnir við að „dissa“ hvorn annan, bæði í formi sérstakra laga tileinkuð andstæðing sínum, og sjálfstæðra rímna í ótengdu lagi.

Eftir útgáfu „DAYTONA“ svaraði Drake snöggt um hæl og gaf út lagið „Duppy Freestyle“, rétt undir sólahring eftir fyrstu áras Pusha T. Á „Duppy Freestyle“ lætur Drake bæði Pusha T og sinn fyrrum vin og samstarfsfélaga, Kanye West, heyra það.

Drake svarar fyrir sig ásamt því að monta sig af eigin afrekum, samtímis þess sem hann bendir á það sem betur hefði mátt fara í ferli Pusha T.



 

Stuttu eftir útgáfu „Duppy Freestyle,“ gaf Pusha T út lagið sem setti internetið á hliðina og skaðaði hið góða orðspor sem Drake hefur getið sér í gegnum árin, „The Story of Adidon.“ Ekki nóg með það að útgáfu lagsins fylgdi áður óséð, niðurlægjandi ljósmynd af Drake með svokallað „blackface,“ heldur var hann einnig ásakaður um að hylja sinn eigin son frá almenningi og skrifa ekki sína eigin texta. Einnig fengu almennar móðganir gegn honum og samstarfsaðilum hans að fylgja með. Nafnið á laginu, „Saga Adidons“, vísar til nafns meints sonar Drakes, sem er talin vera rétt undir eins árs gamall í dag.

Slúðurmiðillinn TMZ greindi fyrst frá meintum syni Drakes og barnsmóður hans í Maí 2017. Hin meinta barnsmóðir er klámstjarnan Sophie Brussaux. Sophie greinir frá því að Adidon hafi verið getinn í Janúar 2017, einmitt um þann tíma sem myndir náðust af henni og Drake saman á veitingastað í Amsterdam.

Fyrir útgáfu „The Story of Adidon,“ höfðu sögusagnir af meintum syni Drakes einungis verið orðrómar slúðurblaða, en eftir harðorðar yfirlýsingar Pusha T í rímnaformi, hefur álit almennings breyst. Drake hefur hvorki neitað ásökunum né tjáð sig um málið. Rappaðdáendur víðsvegar um heiminn bíða nú æsispenntir eftir svari Drakes.



 


Tengdar fréttir

Yeezús er risinn aftur

Íslandsvinurinn Kanye West vaknaði til lífsins á Twitter í síðustu viku og fór að senda frá sér tíst í gríð og erg. Þar á meðal kynnti hann nýja bók og tvær nýjar plötur, þar á meðal sólóplötuna sem hann hefur verið að vinna að í Wyoming-fylki upp á síðkastið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.