Lífið

Hvernig hægt er að lifa af haustið langa

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Sirka svona verður heimilið líklega eftir þetta langa haust sem nú gengur yfir.
Sirka svona verður heimilið líklega eftir þetta langa haust sem nú gengur yfir. Fréttablaðið/Anton Brink
Það er formlega borin von að það verði nokkurt sumar hér á suð-vesturhorni landsins í þessari svokölluðu höfuðborg landsins. Það er ekkert hægt að gera í því og þá er bara að sætta sig við orðinn hlut og halda áfram með lífið. Hér eru nokkrar tillögur að því hvernig má nýta það sem eftir er af þessu langa hausti – innandyra.

Safna frímerkjum

Það er algjör klassík að safna frímerkjum og það liggur því algjörlega við að taka þetta merkilega áhugamál upp nú þetta mikla haust-sumar. Á meðan rigning og kaldur vindur leikur um gluggana situr þú fyrir innan þá í upphitaðri stofu og rennir gegnum safn þitt af skildingafrímerkjum eða reynir að finna út hvernig þú getur fyllt upp í gloppurnar í möppunni.



Mála fígúrur

Warhammer og annað í þeim dúr er prýðilegasta áhugamál. Um er að ræða spil sem er spilað með mjög vönduðum og smábrotnum fígúrum sem þarf að safna og, það sem mikilvægast er, að mála. Hverja einustu fígúru þarf að gæða lífi með alls kyns litum og það krefst töluverðrar færni að gera það. Eftir að fígúrurnar hafa verið málaðar er svo hægt að spila með þær, þannig að þetta er tvö- eða þrefalt áhugamál í einum pakka.



Módelgerð

Þegar fantasíuheimur Warhammer er ekki nóg til að sleppa undan gráum veruleika haustsins langa er sniðug hugmynd að koma sér inn í módelgerð. Það er hægt að hanna og smíða heilu landsvæðin þar sem aldrei rignir, koma fyrir litlum módel-persónugervingum af sér sjálfum sem fáklæddir njóta eilífrar sólar fjarri sífreranum á Fróni og dunda sér við að setja saman trjágróður sem mun aldrei ná að vaxa í stinningskaldanum hér í miðju Íshafinu.

Módelgerð er heppilegt áhugamál í sumar og þú getur ímyndað þér að þú sért pínulítil fígúra í pínulitlum sólríkum heimi þar sem aldrei rignir.

Garðyrkja

Í geðshræringu yfir veðrinu er þreyttasta tuggan á íslenskri tungu orðin sú að tala um að rigningin sé „góð fyrir gróðurinn“. Það er þá kannski bara algjörlega tilvalið að fara alla leið í garðyrkjunni og koma sér upp heilum frumskógi af útijurtum sem vaxa best algjörlega vatnsósa. Nú geturðu tekið undir það þegar fólk reynir að hugga sig við áhrifum rigningarinnar á gróðurinn, nema þú ert að meina það og hugsa um vatnaliljurnar þínar sem fljóta um í bakgarðinum.



Spila Fortnite

Allir krakkarnir eru að spila einhvern tölvuleik sem heitir Fortnite og hann er víst svo skemmtilegur að það er búið að lýsa því yfir að hann sé geðsjúkdómur, eins og kvikmyndin Infinite Jest sem er svo góð að fólk getur ekki hætt að horfa á hana og deyr á endanum. Lífið héðan í frá er bara eilíf innivera – því ekki að sökkva sér í Fornite og koma aldrei aftur til baka?



Undirbúa veturinn

Það er ekki svo langt í veturinn, þannig lagað, og því ekki að nýta alla þessa inniveru í að undirbúa þig fyrir Vetur konung? Það væri til að mynda hægt að nota tölvuna til að panta sér alls kyns þurr- og dósamat fyrir veturinn, afmælisgjafir fyrir alla vinina sem eiga afmæli næsta vetur og afgreiða jólagjafirnar í sumar.



Klára meistaraverkið

Ertu með óklárað meistaraverk „í skúffunni“? Nú er tíminn! Þú klárar auðvitað þetta verk sem öllu mun bylta og þú hugsar um hvert kvöld rétt áður en þú sofnar en gleymir alltaf að hugsa um á daginn þegar þú getur unnið í því.


Tengdar fréttir

Veðrið hefur áhrif

Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, segir rigningu og sól hafa áhrif á líðan fólks. Langvarandi rigning getur gert fólk þreytt og einbeitingarlaust en sólin ýtir undir hreyfingu og almenna vellíðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.