Lífið

Baksviðskröfur Guns N' Roses á Laugardalsvelli endurspegla nýjan lífsstíl

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Gítargoðsögnin Slash og leðurbarkinn Axl Rose á tónleikum í Madison Square Garden í fyrra. Þeir koma fram á Laugardalsvelli á þriðjudag í úrhellisrigningu, samkvæmt veðurspám.
Gítargoðsögnin Slash og leðurbarkinn Axl Rose á tónleikum í Madison Square Garden í fyrra. Þeir koma fram á Laugardalsvelli á þriðjudag í úrhellisrigningu, samkvæmt veðurspám. Vísir/getty
Undirbúningur fyrir risastónleika rokkhljómsveitarinnar Guns N‘ Roses er nú í fullum gangi í Laugardalnum. 22 þúsund miðar hafa verið seldir á tónleikana að sögn upplýsingafulltrúa.

Tónleikarnir verða haldnir á Laugardalsvelli þriðjudaginn 24. júlí næstkomandi og er eflaust beðið með mikilli eftirvæntingu.

Hóflegar kröfur komu á óvart

Allur búnaður til tónleikahaldsins, um 56 gámar af varningi auk 100 vörubíla, er kominn til landsins en sveitin sjálf er ekki væntanleg fyrr en í fyrsta lagi á sunnudag, að sögn Björns Teitssonar, upplýsingafulltrúa.

Sjá einnig: Guns N' Roses liðar verða eftir og njóta Íslands

Aðspurður segir Björn að tónleikahöldurum hafi helst komið á óvart hvað svokallaður „rider“, eða óskalisti, rokkstjarnanna er hóflegur. Á meðal þess sem hljómsveitin vill hafa aðgengilegt baksviðs á tónleikunum á þriðjudag eru jógadýnur og grænt te – töluverð breyting frá því sem beðið var um á sokkabandsárum sveitarinnar.

„Þeir eru hættir að reykja og drekka og eru að reyna að halda sér í formi út túrinn,“ segir Björn.

Tölvuteikning Tómasar Péturssonar af tónleikasvæðinu.Mynd/Tómas Pétursson

Rigning en blankalogn á tónleikadag

Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands er von á töluverðri rigningu í Reykjavík á þriðjudag en Björn segir engar sérstakar ráðstafanir verða gerðar til að halda áhorfendum þurrum. Eins og spáin er núna verður enn fremur blankalogn á tónleikasvæðinu og því ætti hljómburður að vera með besta móti.

Þá er gert ráð fyrir að sviðið sem nú er verið að setja upp á Laugardalsvelli verði 65 metra breitt og 22 metrar það sem það rís hæst. Áhorfendur geta auk þess fylgst með meðlimum Guns N‘ Roses á þremur risaskjám við sviðið.

Eins og áður segir er búið að selja 22 þúsund miða á tónleikana og segir Björn að vonir séu bundnar við að selja tvö til þrjú þúsund miða í viðbót.

Í tilkynningu frá tónleikahöldurum kemur fram að hliðin inn á tónleikasvæðið á þriðjudaginn opni klukkan 16:30. Vegna mikils fólksfjölda hefur verið ákveðið að bæta við inngöngum við suðurhlið leikvangsins. Þá mun hljómsveitin Tyler Bryant & The Shakedowns hefja upphitun um klukkan 18 og því næst tekur íslenska rokksveitin Brain Police við. Axl Rose, Slash og félagar stíga svo á stokk um klukkan 20, að því er segir í tilkynningu.

Frá undirbúningi á Laugardalsvelli í dag.Mynd/Aðsend

Tengdar fréttir

Greiddu Guns N'Roses tónleikana fyrirfram

KSÍ vildi ekki leigja tónleikahöldurum Guns N'Roses Laugardalsvöll nema með fyrirframgreiðslu. Gangi verkefnið vel gæti það opnað risastórar dyr. Grasið verður verndað og skilað í fullkomnu ástandi.

Guns N' Roses liðar verða eftir og njóta Íslands

Tónleika Guns N' Roses á Laugardalsvelli er beðið með eftirvæntingu samkvæmt samfélagsmiðlum. Tónleikahaldari segir að allar líkur séu á að Slash, Axl Rose, Duff McKagan og föruneyti þeirra muni njóta landsins enda séu þetta síðustu tónleikar hljómsveitarinnar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.