Axel leiðir en Haraldur í vandræðum Anton Ingi Leifsson skrifar 26. júlí 2018 19:13 Axel er í forystunni. vísir/gsimyndir.net
Axel Bóasson, úr Golfklúbbnum Keili, er með eins höggs forskot á Íslandsmótinu í höggleik. Leikið er í Vestmannaeyjum og var fyrsti hringurinn í dag. Axel fór á kostum á fyrri níu holunum. Hann spilaði þær á 31 höggi; fékk þrjá fugla og einn örn. Hann endaði á fimm undir pari, 65 höggum. Næst koma þeir Björn Óskar Guðjónsson, GK, og Aron Emil Gunnarsson, GOS, en þeir eru á fjórum höggum undir pari. Haraldur Franklín Magnús var talinn einn helsti keppinautur Axels á mótinu en Haraldur, sem keppti á Opna breska, um síðustu helgi náði sér ekki á strik í dag. Hann spilaði á tveimur höggum yfir pari, 72 höggum, en hann fékk þrjá skolla og einn tvöfaldan skolla á síðari níu holunum í dag.Hér má sjá stöðuna eins og hún er núna.
Golf Mest lesið „Hann er að hringja til að segjast ætla að drepa mig“ Körfubolti Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti Hafsteinn Óli utan hóps hjá Grænhöfðaeyjum Handbolti Fleiri fréttir Gunnlaugur vann en Evrópa tapaði Allt jafnt fyrir lokadaginn Sögufrægur golfvöllur í hættu vegna eldanna í Los Angeles Kylfurnar eftir í Amsterdam en Gunnlaugur nýtur sín meðal þeirra bestu Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur Slógu golfbolta hvors annars og misstu af milljónum Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira