Sport

Í beinni: Fimm Íslendingar keppa á heimsleikunum í CrossFit - dagur 1

Óskar Ófeigur Jónsson og Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifa
Oddrún Eik, Annie Mist, Katrín Tanja, Ragnheiður Sara og Björgvin Karl taka þátt í leikunum.
Oddrún Eik, Annie Mist, Katrín Tanja, Ragnheiður Sara og Björgvin Karl taka þátt í leikunum. Vísir/samsett mynd
Tólftu heimsleikarnir í CrossFit fara fram í Madison í Wisconsin-fylki og standa yfir frá 1. til 6. ágúst. Vísir mun fylgjast með leikunum og áframvarpa beinum útsendingum frá CrossFit-samtökunum.

Fimm Íslendingar keppa í fullorðinsflokki á leikunum í ár og þrír í unglingaflokki. Það er ekki slæmt fyrir litla Ísland að eiga alls átta fulltrúa meðal besta CrossFit-fólks í heimi.

Björgvin Karl Guðmundsson er eini keppandinn í karlaflokki en þær Anníe Mist Þórisdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir, Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir og Oddrún Eik Gylfadóttir keppa allar í kvennaflokki. Frederick Aegidius, kærasti Annie Mistar, er einnig með.

Brynjar Ari Magnússon keppir í flokki stráka 14 til 15 ára, Birta Líf Þórarinsdóttir keppir í flokki stelpna 14 til 15 ára og Katla Björk Ketilsdóttir, núverandi Íslandsmeistari í CrossFit, keppir síðan í flokki stelpna 16 til 17 ára.

Fyrsti keppnisdagurinn er í dag miðvikudaginn 1. ágúst og þá fara fram fjórar greinar. Þetta hefur verið kallaður erfiðasti dagurinn í sögu heimsleikanna í CrossFit.

Dagskráin á degi 1 á heimsleikunum 2018:

1. grein - Götuhjólreiðakeppni

2. grein - 30 Muscle ups

3. grein - Crossfit lyftingar

4. grein - Maraþon róður



Hér að neðan má sjá beina útsendingu frá heimsleikunum.

Hér fyrir neðan má lesa beina textalýsingu blaðamanns Vísis sem fylgist með nýjustu vendingum á leikunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×