Stjörnuspá Siggu Kling – Fiskarnir: Allir þurfa að læra að synda sjálfir 3. ágúst 2018 09:00
Elsku Fiskurinn minn, þvílíkt magnað fyrirbæri að vera þú, þú ert ómótstæðilega flinkur og ómissandi vinur og ráðgjafi. Það eina sem getur drepið þig er stress út af vitleysu. Listræna orkan þínar og leikrænir hæfileikar eru þinn X-Factor svo magnaðu upp sjálfan þig og skapaðu þann karakter sem þér líkar við. Að engu leyti getur þú verið undirgefin týpa því það jarðar og kæfir sköpunargáfu þína. Að hafa móral yfir öllu eða áhyggjur af annarra manna skoðunum stoppar þig í framkvæmdagleði þinni og hæfileikum til að gefa og gera þitt besta. Til að ná árangri í lífinu þarf maður að æfa sig en það er ekki æfingin sem skapar Fiskameistarann heldur aukaæfingin; að gera meira en þú þarft eru skilaboðin til þín. Þú átt það til að loka á fólk og halda þú getir gert allt einn og sjálfstætt en þar sem þú ert í Fiskamerkinu sérðu að það eru tveir Fiskar sem eru tákn þitt. Þú þarft að vissu leyti að stjórna en ert ekki Guð almáttugur svo slepptu tökunum á þeim sem þú ætlar að bjarga og jafnvel bjarga á vitlausan máta. Allir þurfa að læra að synda sjálfir og friðurinn í hjarta þínu felst í því að þú sért ekki sú manneskja sem leysir vanda hjá öllum þeim sem þú heldur að séu ósyntir. Það er svo magnað hvað fólk getur bara ef þú gefur þeim svigrúm svo slepptu tökunum. Þú berst fyrir alla fram í rauðan dauðann og verndar og en ef þú ert svikinn manstu það aðeins of lengi. Nú skaltu ekki reyna að vera sniðugur, efldu tengslin við þá sem ergja þig og út úr því munu koma ólýsanlegir atburðir sem hjálpa þér að ná takmarki þínu hvað svo sem það er. Gefðu þér tíma til að njóta lífsins lystisemda sem eru að koma til þín því þú ert búinn að sá fyrir mikilli uppskeru og gamlar hugmyndir verða að veruleika þó það sé ekki nákvæmlega það sem þú hefur barist fyrir undanfarið eru það samt hárréttir atburðir sem eru að gerast. Þar sem þú hefur svo óútskýranlegt afl er svo mikilvægt þú skiljir að það er vatnið sem gefur þér orkuna og kraftinn svo staldraðu aðeins lengur við í baði en þú þolir, sestu við sjóinn helst alltaf á sama stað því það er sú hugleiðsla sem kemur þér lengst og eflir þig mest. Í ástinni þarftu að vita að skilyrðislaus ást er það sem gerir þig frjálsan, punktur og ekkert meira.Frægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling, Lína Rut listaperla, Nanna Lovísa dýranuddari, Höskuldur Kári Schram fréttamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Segir frumburðinn með nefið hans pabba Lífið Jón Steinar selur sumarparadís með útsýni að Heklu Lífið Rúrik á batavegi eftir aðgerð Lífið „Það hefur verið reynt að hafa áhrif á ráðningu mína“ Lífið „Ég persónulega fílaði þetta ekkert í botn“ Lífið Stjörnum prýdd kynning enska boltans Lífið VÆB mögulega með sumarhittara ársins? Lífið Taylor sögð hóta Kanye lögsókn Lífið Grey‘s Anatomy-stjarna greindist með MND Lífið Fólki þyki erfiðast að setja mæðrum og tengdamæðrum mörk Lífið Fleiri fréttir „Ég persónulega fílaði þetta ekkert í botn“ Taylor sögð hóta Kanye lögsókn Joey Christ og Alma selja íbúðina Stjörnum prýdd kynning enska boltans Jón Steinar selur sumarparadís með útsýni að Heklu „Það hefur verið reynt að hafa áhrif á ráðningu mína“ Segir frumburðinn með nefið hans pabba VÆB mögulega með sumarhittara ársins? Rúrik á batavegi eftir aðgerð Grey‘s Anatomy-stjarna greindist með MND Fólki þyki erfiðast að setja mæðrum og tengdamæðrum mörk Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Huggulegustu leikarar landsins undir einu þaki Ofurskvísur eins klæddar á ofurskvísuæfingu Mundi ekki hver stýrði Newcastle United um aldamótin Einstök geymslutiltekt á Birkimel: „Hlutirnir hjálpa mér að muna“ Eiginkona bassaleikara Weezer skotin af lögreglu Stórglæsilegir vinningar í Páskabingói Blökastsins „Enduðum á að kyssast í skrifstofustólnum hans“ Bíó Paradís valið eitt af 21 svölustu kvikmyndahúsum heims Margrét selur hönnunarperlu í Skerjafirði Söngnemendur á Hvolsvelli með Kabarett Íslandsmet? Eiga sex barnabörn í leikskólanum á Vopnafirði Hætti í fússi eftir linnulausar svívirðingar nettrölla Draumur breska þríeykisins rætist á Húsavík Pitsurnar til styrktar minningarsjóðnum rjúka út Eyddu undir hundrað þúsund krónum í matarinnkaup í desember Heillandi sumarhús úr smiðju Leifs Welding: Jensen rúm fylgir með kaupunum Katrín Halldóra fyllir í stóra skó Segir óheilbrigt að pör djammi mikið hvort í sínu lagi Sjá meira