Þrenna frá Aguero þegar Englandsmeistararnir léku sér að Huddersfield Arnar Geir Halldórsson skrifar 19. ágúst 2018 14:15 Ekki flókið sport fyrir suma. Vísir/Getty Yfirburðir Englandsmeistara Manchester City voru algjörir þegar Huddersfield kom í heimsókn á Etihad leikvanginn í 2.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Heimamenn keyrðu yfir gestina strax frá fyrstu mínútu og voru komnir í 3-0 eftir rúmlega hálftíma leik. Jon Stankovic klóraði hins vegar í bakkann fyrir gestina undir lok fyrri hálfleiks. Í síðari hálfleik héldu meistararnir hins vegar áfram að leika sér að gestunum og unnu að lokum 6-1 sigur þar sem Sergio Aguero gerði þrjú marka City. City því með fullt hús stiga eftir sigur á Arsenal í fyrstu umferð en Huddersfield hefur fengið tvo skelli í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins; 3-0 gegn Chelsea í fyrstu umferð og 6-1 gegn Man City í dag. Enski boltinn