Lífið

Friðrik Dór flytur hugljúft lag til dóttur sinnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frikki Dór er einn vinsælasti söngvari landsins.
Frikki Dór er einn vinsælasti söngvari landsins.
„Ég samdi lítið lag til dóttur minnar. Hún er orðin svo stór allt í einu. Fannst það krúttlegt svona á kassagítar og ákvað að deila því með ykkur,“ segir söngvarinn Friðrik Dór Jónsson í færslu sinni á Facebook.

Þar má sjá myndband sem hann deilir þar sem hann flytur lag til dóttur sinnar og er lagið sérstaklega fallegt.

Friðrik Dór og Lísa Hafliðadóttir eignuðust stelpu saman árið 2013. Ekki áður hefur það heyrst opinberlega en hér að neðan má hlusta á lagið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.