Bíó og sjónvarp

Kvikmyndir sem Íslendingar gráta mest yfir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sumar myndir snerta meira við fólki en aðrar.
Sumar myndir snerta meira við fólki en aðrar.
Kvikmyndir hafa oft á tíðum gríðarlega mikil áhrif á áhorfendur og kannast eflaust flestir við að  tárast eða jafnvel gráta við það eitt að horfa á bíómynd.

Tístarinn Silja Björk varpaði fram skemmtilegri spurningu á Twitter í vikunni sem hljómar svona:

Hvaða kvikmynd fékk ykkur til þess að grenja mest? Ég hef aldrei grátið jafn mikið yfir einni kvikmynd og Brokeback Mountain?

Teiknimyndin Coco kom við sögu í þræði Silju og birti þá Ingileif Friðriks myndband af sér að gráta í flugvél eftir að hafa horft á myndina. 

Í kjölfarið fóru svörin að streyma inn og höfðu heldur betur margir skoðun á málinu. Þeir Brennslubræður Kjartan Atli Kjartansson og Hjörvar Hafliðason tóku eftir tístinu og ræddu málið í þætti sínum á FM957 í morgun.

Þjóðin hringdi inn og höfðu einnig margir hlustendur skoðun á þessu eldheita máli. Þær myndir sem fengu tilnefningar í þættinum í morgun eru þessar:

Armageddon

Bodyguard

Fast 6

A Dog's Purpose

Titanic

My Girl

E.T.

David

If I Stay

Southpaw

The Notebook

Marley and Me

The Green Mile

Djöflaeyjan

Vonarstræti

Lion King

Tarzan







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.