Lífið

Hætti með Ben Affleck svo hann gæti náð botninum

Sylvía Hall skrifar
Á meðan allt lék í lyndi.
Á meðan allt lék í lyndi. Vísir/Getty
Saturday Night Live framleiðandinn Lindsay Shookus og Óskarsverðlaunahafinn Ben Affleck hættu saman fyrr í mánuðinum eftir árlangt samband. Ástæðan er sögð vera áfengisvandi Affleck.

Shookus og Affleck opinberuðu samband sitt í júní í fyrra, en hann skildi við fyrrum eiginkonu sína, leikkonuna Jennifer Garner, árið 2015. 

Samkvæmt heimildarmanni People.com hafði Shookus staðið þétt við bakið á sínum manni í gegnum bataferlið, en Affleck hefur glímt við fíknivanda um árabil. Hún hafi mætt með honum á fundi og stundað hugleiðslu með honum og verið annt um að hann næði bata. 

Bataferlið gekk ekki sem skyldi og síðustu mánuði hafi ástandið bara versnað. Shookus hafi einfaldlega fengið nóg og talið það vera Affleck fyrir bestu að hún myndi enda sambandið. Hann hafi þurft að ná botninum.

Það var þó fyrrverandi eiginkona leikarans, Jennifer Garner, sem greip inn í og fylgdi leikaranum á meðferðarstofnun á miðvikudag. Þá er Affleck sagður hafa verið meðvitaður um ástandið og hafi sjálfur viljað ná bata. 


Tengdar fréttir

Frægir karlmenn með og án skeggs

Það er heldur betur farið að færast í aukanna að karlmenn safni skeggi og virðist það fara sumum betur en öðrum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.