Lífið

Sigurvegari America´s Got Talent mætti til Ellen og sýndi af hverju hann vann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ellen var mjög hrifin.
Ellen var mjög hrifin.
Raunveruleikaþátturinn America´s Got Talent hefur verið í sýningu vestanhafs undanfarna mánuði og nú er orðið ljóst hver fór með sigur af hólmi.

Höskuldarviðvörun: Þeir sem hafa ekki horft á nýjustu þáttaröðina af America´s Got Talent og vilja alls ekki vita hvaða einstaklingur vann keppnina ættu ekki að lesa lengra.

.

.

.

.

.

Það er búið að vara þig við.

.

.

.

.

.

.





Sigurvegarinn heitir Shin Lim og er töframaður sem sýnir lygilega spilagaldra fyrir framan áhorfendur.

Hann mætti til Ellen og sýndi henni og Wanda Sykes og Beth Behrs svakalega spilagaldra sem gerðu þær hreinlega orðlausar eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×