Mitrovic tryggði Fulham stig Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 22. september 2018 13:15 Mitrovic fagnar marki sínu vísir/getty Fulham og Watford skildu jöfn í fjörugum leik á Craven Cottage í dag. Aleksandar Mitrovic tryggði Fulham stig í leiknum. Andre Gray kom Watford yfir eftir 90 sekúndna leik. Fulham hefur lekið inn mörkum í deildinni til þessa og fá ekki mörg prik fyrir varnarleikinn í þessum leik. Leikurinn var mjög fjörugur í fyrri hálfleik og áttu bæði lið fjölmörg færi. Það kom hins vegar ekki annað mark og staðan 0-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Slavisa Jokanovic gerði tvær breytingar í hálfleik og liðið kom miklu betur út í seinni hálfleikinn. Seinni hálfleikurinn var ekki mikið rólegri en sá fyrri en eina mark hans kom á 78. mínútu þegar Mitrovic jafnaði metin eftir sendingu frá Luciano Vietto. Mitrovic hefði getað stolið sigrinum fyrir Fulham á lokasprettinum þegar skalli hans eftir hornspyrnu fór í þverslánna. Sigurmarkið kom ekki, niðurstaðan 1-1 jafntefli. Enski boltinn