Rauði krossinn í viðbragðsstöðu vegna hamfaranna í Indónesíu Heimsljós kynnir 5. október 2018 16:00 Indónesíski Rauði krossinn hefur einbeitt sér að leit og björgun á þremur svæðum, Palu, Sigi og Doggala. Rauði krossinn
Rauða kross hreyfingin reynir ávallt að bregðast hratt og örugglega við náttúruhamförum alls staðar um heiminn. Að minnsta kosti 1200 eru látin í Indónesíu eftir jarðskjálfta og tsunami flóðbylgju í kjölfarið, a.m.k. 800 eru slasaðir og meira en 160.000 hafa misst heimili sín. Þetta kemur fram á vef Rauða krossins á Íslandi. Rauði krossinn á svæðinu er í kapphlaupi við tímann að koma aðstoð til þolenda, en það hefur reynst erfitt vegna m.a. vegna vegna skemmda á vegakerfi. Indónesíski Rauði krossinn hefur einbeitt sér að leit og björgun á þremur svæðum, Palu, Sigi og Doggala. Önnur svæði sem þurfa bráðnauðsynlega á aðstoð að halda eru norður Mamuju, Parrigi og Moutong. Færanleg heilsugæsla hefur verið sett upp í Sigi þar sem læknar huga að slösuðu fólki.Afleiðingar hamfaranna eiga enn eftir að koma að fullu í ljós.Rauði krossinnVegna erfiðs aðgengis að svæðinu hefur indónesíski Rauði krossinn sent þrjú skip af stað sem munu sigla á svæðin sem verst urðu úti. Skipin eru hlaðin vörubílum fullum af vatni, eldhúsum sem auðvelt er að koma upp, moskítónetum, dýnum, hreinlætis- og barnapökkum, tjöldum auk líkpoka. Afleiðingarnar af þessum hamförum eiga enn eftir að koma að fullu í ljós en hreyfingin öll er í viðbragðsstöðu, m.a. vegna fjármagns sem senda þarf til að viðhalda björgunarstarfi.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim.Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent