Lífið

Halldór og Eiríkur Helgasynir í spor Freddie Mercury í nýjustu myndinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Halldór Helgason fer á kostum í myndinni.
Halldór Helgason fer á kostum í myndinni.
Nýjasta snjóbrettamynd Transworld Snowboarding kom út á dögunum en þar fara Akureyringarnir Halldór og Eiríkur Helgason með aðalhlutverk.

Transworld Snowboarding er einn stærsti snjóbrettamiðill heims og byrjar myndin á nokkuð skemmtilegu atriði þar sem bræðurnir fara í spor Freddie Mercury þegar þeir leika sér við lagið I Want to Break Free sem hljómsveit Freddie Mercury Queen gerði ódauðlegt á sínum tíma.

Í myndinni má sjá Ísland bregða fyrir á nokkrum stöðum en hér að neðan má sjá myndina í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.