Bíó og sjónvarp

Segir Hollywood og Tom Cruise geta lært margt af nýjustu mynd sinni

Birgir Olgeirsson skrifar
Leikstjórinn Benedikt Erlingsson.
Leikstjórinn Benedikt Erlingsson. Vísir/Getty
Eymd, ofbeldi, dauða, byssur og kynlíf er ekki að finna í kvikmynd Benedikts Erlingssonar, Kona fer í stríð.

Þetta sagði Benedikt þegar hann tók við spurningum úr sal eftir að myndin hafði verið sýnd í Los Angeles í tengslum við kvikmyndaverðlaun bandaríska vefmiðilsins The Wrap á miðvikudag.

The Wrap fjallar um það sem Benedikt hafði að segja eftir að myndin hafði verið sýnd en hann sagði að þrátt fyrir að í myndina vantaði ýmislegt sem væri nánast staðalbúnaður í stórmyndum í dag, þá væri myndin spennumynd sem kvikmyndagerðarmenn í Hollywood gætu lært margt af.

Sagði Benedikt myndina vera um njósnir, skemmdarverk, innri djöfla manneskjunnar. Myndin segi frá aðgerðasinna í þágu náttúruverndar sem sé eltur af íslenskum stjórnvöldum og stórfyrirtækjum sem skaða umhverfið.

Halldóra Geirharðsdóttir fer með aðalhlutverk myndarinnar sem Benedikt Erlingsson leikstýrir.Vísir/Getty
Benedikt sagði aðalsöguhetju myndarinnar í fylgd með þremur hljóðfæraleikurum sem elta hana um hlíðar, húsþök og heim til hennar. Sagði Benedikt að hann vildi óska að Hollywood-myndir gerðu meira af því.

„Ímyndaðu þér Tom Cruise að bjarga heiminum með hljómsveit sér við hlið.“

Kona fer í stríð er framlag Íslendinga í flokk erlendra kvikmynda sem sækjast eftir tilnefningu til Óskarsverðlauna.

Benedikt sagði við fjölmiðla að hann hefði sjálfur á sínum tíma verið aðgerðasinni og hlekkjað sig við hvalveiðibát til að koma í veg fyrir að hann héldi úr höfn til veiða.

Hann segist hafa breytt um lífsstíl í dag til að reyna að verða umhverfisvænni. Hann hvetur stjórnmálamenn til að lofa fólki minna til að minnka álagið á jörðina. 


Tengdar fréttir

Rambó skellir sér í skautbúning

Sjáið þessa mynd, látið heillast og fellið nokkur tár. Ef Kona sem fer í stríð hreyfir ekki við ykkur mæli ég með að þið pantið tíma hjá Lækna-Tómasi og biðjið hann um að finna í ykkur hjartað.

Jón Viðar leiðir Kona fer í stríð til slátrunar

Óhætt er að segja að gagnrýnandinn Jón Viðar Jónsson syndi á móti straumnum í gagnrýni sinni á Kona fer í stríð, kvikmynd Benedikts Erlingssonar sem hefur fengið góðar viðtökur í kvikmyndahúsum hér heima sem erlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.