Lífið

Raggi Sig með nýja kærustu

Atli Ísleifsson og Birgir Olgeirsson skrifa
Ragnar Sigurðsson hefur verið fastamaður í hjarta varnarinnar hjá íslenska karlalandsliðinu síðustu ár.
Ragnar Sigurðsson hefur verið fastamaður í hjarta varnarinnar hjá íslenska karlalandsliðinu síðustu ár. Getty
Knattspyrnumaðurinn Ragnar Sigurðsson birti í dag mynd af sér með nýrri kærustu sinni á Instagram. Á myndinni má sjá parið að því er virðist í flugvél, en með myndinni fylgir enginn texti, bara hjarta.

Stúlkan sem um ræðir er rússnesk, Alena að nafni, en á Instagram-síðu hennar má sjá tvær myndir af þeim Ragnari saman. Sú fyrsta var þar birt í síðasta mánuði, en sú síðari fyrr í dag.

Hinn 32 ára Ragnar spilar með liði Rostov í rússnesku úrvalsdeildinni. Hann var ekki í landsliðshópi Íslands fyrir leikinn gegn Belgum í Þjóðadeildinni í dag vegna leikbanns. Ragnar hefur verið fastamaður í hjarta varnarinnar hjá íslenska karlalandsliðinu á undanförnum árum.

Ragnar þekkir vel til Rússlands. Hann spilaði með liði Krasnodar á árunum 2014 til 2016, en var seldur til enska liðsins Fulham eftir EM í Frakklandi 2016. Illa gekk fyrir hann að fóta sig hjá enska liðinu og var hann lánaður til rússneska liðsins Rubin Kazan árið 2017 áður en hann gekk til liðs við Rostov í byrjun þessa árs.

Að neðan má sjá myndir þeirra Ragnars og Alenu á Instagram.

 
 
 
View this post on Instagram
 

A post shared by Ragnar Sigurðsson (@sykurson) on Nov 15, 2018 at 9:15am PST

 
 
 
View this post on Instagram
 

A post shared by Alyonushka (@b.a.msk) on Nov 15, 2018 at 4:26am PST

 
 
 
View this post on Instagram
 

A post shared by Alyonushka (@b.a.msk) on Oct 5, 2018 at 6:17am PDT






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.